Var í sínu besta formi en aldrei liðið verr Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. janúar 2017 11:30 Björg í leik með Grindavík á síðasta tímabili. Vísir/Anton
Körboltakonan Björg Einarsdóttir, sem spilar nú með Snæfelli, segir frá baráttu sinni við íþróttaátröskun í áhugaverðu viðtali sem birtist á Nútímanum í gær. „Íþróttir eru frábærar en þær geta verið erfiðar og tekið verulega á andlegu hliðina,“ segir Björg meðal annars í viðtalinu en hún veiktist árið 2014. Fyrri hluta ársins var hún að jafna sig eftir sambandsslit en lið hennar þá, KR, gekk sömuleiðis illa inni á vellinum. „Þetta lagðist á andlegu hliðina og leiddi til mikillar vanlíðanar,“ sagði Björg sem reyndi að lina sársaukann með því að sækja í mat. Hún tók á mataræðinu þetta sumar og kom sér í gott líkamlegt form. Hún vann sér sömuleiðis sæti í landsliðinu og fékk mikið hrós fyrir bæði frammistöðu sína og útlit. „Það sem fáir vita að mér hefur aldrei liðið jafn illa og haustið 2014. Það var samt sem áður þá sem ég var í mínu besta formi, átti mitt besta tímabil í körfunni og var endalaust hrósað af fólki sem sagði að ég liti vel út,“ sagði hún í viðtalinu. Björg óttaðist að fara aftur í fyrra horf og borðaði af þeim sökum lítið yfir daginn og kastaði upp því sem hún borðaði. Það var svo í nóvember að hún brotnaði niður og leitaði sér hjálpar. Björg var greind með íþróttaátröskun og búlimíu á alvarlegu stigi en viðtalið við hana má lesa á Nútímanum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira