Reykti kannabis fyrir leiki í NBA og varð meistari í fyrra Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. maí 2018 09:00 Matt Barnes reykti fyrir alla leiki í úrslitaeinvíginu í fyrra. vísir/getty
Körfuboltamaðurinn fyrrverandi Matt Barnes, sem lagði skóna á hilluna eftir að verða NBA-meistari með Golden State Warriors í fyrra, reykti kannabis fyrir marga leiki í deildinni, meðal annars fyrir leikina í úrslitaeinvíginu á móti Cleveland Cavaliers. „Ég reykti sex klukkutímum fyrir leik. Við skutum aðeins á körfuna um morguninn og eftir það fór ég heim, reykti eina jónu, lagði mig, fór í sturtu, borðaði og spilaði svo,“ segir Barnes í opinskáu viðtali við BBC. Barnes, sem er 38 ára gamall, segir gríðarlegan fjölda af leikmönnum í NBA-deildinni reykja kannabis en hann faldi þetta ekki fyrir neinum í liðinu og þá allra sístþjálfaranum sínum, Steve Kerr, sem sjálfur reykti kannabis á sínum leikmannaferli. Kerr, sem varð sjö sinnum NBA-meistari með Chicago Bulls og San Antonio Spurs, hefur sagt frá því hvernig hann notaði kannabis til að slá á þráláta bakverki sem hann glímdi við á seinni stigum ferilsins. Kerr hefur biðlað til NBA-deildarinnar um að slaka á refsingum vegna kannabisefna. Í viðtalinu við breska ríkisútvarpið segir Barnes frá því að kannabis hefur verið hluti af lífi hans síðan að hann var fjórtán ára gamall en hann segist ekki vera fíkill. Hann hafi einfaldlega notað efnin á sínum fjórtán leiktíðum í NBA-deildinni með sjö mismunandi liðum til að slá á verki, slaka á og til að hjálpa til með svefn. „Þetta róaði huga minn,“ segir Barnes.
NBA Mest lesið Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira