Innlent

Hvorki eigandinn né ráðuneytið vill borga uppsagnarfrest á Kumbaravogi

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
„Við höfum í raun og veru ekki neinn sérstakan áhuga á því að reyna að snúa þessu við – ekki nema það sé eitthvað betra framundan,“ segir Guðni Kristjánsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda dvalar- og hjúkrunarheimilisins á Kumbaravogi sem verður lokað í lok mars.

Nýleg ráðherraskipti í heilbrigðisráðuneytinu munu að sögn Guðna vísast engu breyta um þá ákvörðun fyrrverandi ráðherra að loka heimilinu á Kumbaravogi. Hann segir minnst helming íbúanna ekki enn vita hvar þeir muni búa eftir 31. mars.

„Við erum mjög ósáttir við hvernig þeir fara að þessu. Það eru svo mikil læti og erfiðleikar í kring um þetta að setja gamalt fólk í þá aðstöðu að þurfa að vera í óvissu um hvar það á að vera. En í sjálfu sér þá höfum við ekki beinan áhuga á því að halda þessu áfram vegna þess að þessi rekstur er það erfiður,“ segir Guðni.

Af þrjátíu heimilismönnum á Kumbaravogi segir Guðni aðeins fjóra flutta út nú þegar; þrjá á Eyrarbakka og einn á Fellsenda í Dölum. Til standi að einhverjir fari í Hveragerði, aðrir á Hellu og einn á Eskifjörð. „Okkur er bara sagt að þessi sé að fara þangað og hinn hingað en fólkið er nú hérna enn þá,“ segir hann.

Um fimmtíu manns starfa á Kumbaravogi, sumir þó aðeins í hlutastarfi. Allir missa vinnuna. „Það er náttúrlega dálítið bágt og óöruggt enda framtíðin óljós,“ segir Guðni um stemninguna hjá starfsfólkinu. Hann viti aðeins um tvo sem hafi fengið nýtt starf. Þess utan hafi ein kona hvort sem er ætlað að hætta til að snúa sér að öðru.

Allt að sex starfsmenn eru með sex mánaða uppsagnarfrest en óljóst er hver borgar laun þeirra eftir 31. mars. „Svo eiga allir sinn orlofsrétt eftir það, það er líka peningur. Það hefur eitt verkalýðsfélag rætt við þá í ráðuneytinu og þeir hafa svarað að þetta sé alfarið okkar mál hér og komi þeim ekkert við. Það gengur náttúrlega ekki.“

Mikil mannvirki eru á Kumbaravogi sem Guðni segir ekki ákveðið hvernig verði nýtt. „Við erum bara að jafna okkur á þessu. Húsin fara svo sem ekki neitt. Einhvern veginn þurfa þau að vinna fyrir sér. Við vitum ekki hvort við eigum að vera með einhverja starfsemi hérna, leigja þetta öðrum eða jafnvel selja.“

Guðni segir að sér hefði þótt eðlilegt að bíða með lokun Kumbaravogs þar til áformað hjúkrunarheimili á Selfossi er risið. „Það getur varla verið dýrara að setja einhvern smá pening í að gera við þessa fáu hluti hér sem þeir eru með athugasemdir við heldur en að vera að þessum látum – að þeyta gömlu fólki hér út og suður í óþarfa óvissu. Það er enginn í lífshættu hérna.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×