Sport

Yfir 3000 miðar seldust í forsölu

Á fjórða þúsund miðar seldust í forsölu á leik Íslands og Ungverjalands sem mætast í undankeppni HM 2006 á Laugardalsvelli í dag. Miðar sem keyptir voru í forsölu gilda á báða leiki Íslands nú í vikunni, gegn Ungverjum í dag og gegn Möltu á miðvikudag. Áhorfendur gerðu kostakaup því miðaverð á báða leikina í nýju stúkuna var aðeins 1.500 krónur en tilboðið rann út í gær föstudag. Miðalasa hófst á Laugardalsvelli kl. 11:00 í morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×