Leikjavísir

„Fundum einu sinni 50 borvélar við húsleit“

Tilkynnt var um þrjú innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eitt innbrot á heimili. Um sjöleytið barst lögreglu tilkynning um innbrot í bíl við Grettisgötu. Talsvert af verkfærum var stolið úr bílnum ásamt hljómflutningstækjum.

Skömmu síðar barst tilkynning um innbrot í bíl við Grýtubakka. Rúða í bílnum var sennt upp og verkfærum stolið ásamt geisladiskum með Svölu Björgvins og Birgittu Haukdal. Einnig var brotist inn í bíl við Klettháls. Þá var brotist inn á heimili í Lundabrekku í Kópavogi. Þaðan var stolið Playstation 3 tölvu og átta leikjum.

Lögreglan segir fremur algengt að verkfærum sé stolið í innbrotum en ástæðan sé ekki sú að þau séu þægilegur gjaldmiðill á fíkniefnamarkaði. "Stundum liggja menn bara á þessum verkfærum vikum saman og ætla síðan að koma þessu í verð seinna," sagði lögreglumaður, á vakt, sem Vísir talaði við. "Ég man eftir því að eitt sinn fundum við 50 borvélar á heimili þar sem við gerðum húsleit," bætti lögreglumaðurinn við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.