Lífið

Kaffihúsafundur Spaugstofubræðra vekur athygli: „Aldrei verið ferskari og til í allt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það fór vel á þeim félögum í morgun.
Það fór vel á þeim félögum í morgun. mynd/facebook-síða Pálma Gestssonar.

Spaugstofumennirnir Pálmi Gestsson, Örn Árnason, Randver Þorláksson, Sigurður Sigurjónsson og Karl Ágúst Úlfsson hittust á kaffihúsi í morgun og fóru yfir málin.

Pálmi birtir mynd á Facebook af fimmmenningunum og skrifar við myndina: „Klíkufundur“

Vísir heyrði hljóðið í Pálma.

„Við vorum bara að hittast, fara yfir málin og fagna nýju ári,“ segir Pálmi.

„Við hittumst ekki nægilega oft allir fimm og ættum að gera miklu meira af því. Við erum allir mjög góðir vinir.“

Fjölmargir hafa séð myndina og velta sumir því fyrir sér hvort endurkoma Spaugstofunnar sé væntanleg.

„Nei, ég get nú ekki sagt það. Við höfum samt aldrei verið ferskari og erum til í allt. Maður veit svosem aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Það er aldrei að vita hvað gerist.“

Spaugstofan var á dagskrá RÚV og síðar meir á Stöð 2 í mörg ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.