Lífið

Radiohead opnar fjársjóðskistuna

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Gríðarlegt magn efnis má nú finna á vef Radiohead.
Gríðarlegt magn efnis má nú finna á vef Radiohead. Mynd/Radiohead

Breska hljómsveitin Radiohead hefur opnað fjársjóðskistuna og gert mikinn fjölda tónleikaupptaka, tónlistarmyndbanda, æfingarefnis og listaverka, svo dæmi séu tekin, aðgengilegan á einum stað.

Safnið er aðgengilegt á vef Radiohead og hefur vefsvæðið fengi nafnið Radiohead Public Library sem þýða mætti sem Almenningsbókasafn Radiohead.

Í tilkynningu frá hljómsveitinni sé að markmiðið með verkefninu sé að á einum stað sé hægt að nálgast gríðarmikið efni sem tengist hljómsveitinni, sem áður hefur verið dreift hér og þar um internetið. Þannig geti aðdáendur nú nálgast ýmsar tónleikaupptökur og annað sem tengist hljómsveitinni í miklum gæðum og án auglýsinga.

Sjá einnig:Þegar Radiohead hélt bestu tónleika sögunnar

Meðal þess sem finna má í „bókasafninu“ er hágæðaupptaka frá goðsagnakenndum tónleikum sveitarinnar á Bonnaroo tónleikahátíðinni árið 2006, upptaka frá umdeildum tónleikum sveitarinnar í Tel Aviv árið 2017, fjórtán mínúta upptaka frá tónleikum Radiohead á Glastonbury árið 1997, sem nefndir hafa verið sem bestu tónleikar sögunnar, og svo mætti lengi áfram telja.

Undanfarin ár gjöful fyrir aðdáendur

Einnig er hægt, í fyrsta skipti, að streyma fyrstu útgáfu hljómsveitarinnar, stuttskífunnar Drill sem kom út árið 1992, á netinu.

Undanfarin ár hafa verið nokkuð gjöful fyrir aðdáendur sveitarinnar en gríðarmikið áður óútgefið efni hefur komið út á síðustu árum. Árið 2017 gaf hljómsveitin út 20 ára afmælisútgáfu OK Computer-breiðskífunnar, þar sem finna mátti upptökur sem aldrei höfðu heyrst áður. Það efni má til að mynda finna í hinu nýja „bókasafni“.

Sjá einnig:Lagið sem hefði gert Radiohead of vinsæla loks að koma út

Á síðasta ári gaf hljómsveitin svo út sautján klukkutíma af upptökum frá æfingum og tónleikum þegar hljómsveitin var að vinna að gerð OK Computer, eftir að efninu var lekið á netið. Óhætt er að segja að upptökurnar veiti magnaða innsýn í gerð plötunnar, sem er iðulega ofarlega á blaði þegar bestu plötur tónlistarsögunnar eru teknar saman.

Nálgast má bókasafnið hér.


Tengdar fréttir

Lagið sem hefði gert Radiohead of vinsæla loks að koma út

Síðar í þessum mánuði verða tuttugu ár frá því að meistaraverk Radiohead, platan OK Computer, var gefin út. Til þess að minnast þess áfanga mun hljómsveitin gefa út viðhafnarútgáfu af plötunni þar sem með fylgja lög sem tekin voru upp á sama tíma og OK Computer en fengu ekki að að fljóta með á plötunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.