Innlent

Löggan mætir í Laugardalinn á morgun

Lögreglan sektaði fjölmarga ökumenn í Laugardalnum um síðustu helgi
Lögreglan sektaði fjölmarga ökumenn í Laugardalnum um síðustu helgi Mynd/Lögreglan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þetta sé nefnt sérstaklega vegna landsleiks Íslendinga og Dana í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvellinum annað kvöld.

Reynsla síðustu ára sýnir að bílastæði við völlinn eru ekki fullnýtt þegar ýmsir stórviðburðir fara þar fram. Þess í stað hafa margir lagt það í vana sinn að leggja ólöglega á Reykjavegi og Engjavegi svo aðeins tvær götur séu nefndar. Sömuleiðis er iðulega lagt ólöglega á ýmis grassvæði í Laugardalnum. Lögreglan ítrekar því tilmæli sín til ökumanna og hvetur þá til að nýta bílastæðin til fulls. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 krónur, rennur í Bílastæðasjóð.

Um síðustu helgi var ástandið í Laugardalnum, eins og að framan er lýst. Þá lögðu margir ólöglega þrátt fyrir að mörg bílastæði væru í boði. Þeim vallargestum sem fá ekki bílastæði við Laugardalsvöllinn sjálfan er bent á að í nágrenni hans eru víða ágæt bílastæði. Sömuleiðis er minnt á að veðurútlitið er þannig að engum ætti að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum, segir í tilkynningu frá lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×