Erlent

Níðingur dæmdur í 430 ára fangelsi

Jaycee Lee Dugard var haldið í tæp tuttugu ár í bakgaði Garrido hjónanna.
Jaycee Lee Dugard var haldið í tæp tuttugu ár í bakgaði Garrido hjónanna.
Hjónin Philip og Nancy Garrido hafa verið dæmd í fangelsi fyrir ránið á Jaycee Lee Dugard árið 1991. Parið rændi stúlkunni þegar hún var aðeins ellefu ára gömul fyrir utan heimili sitt í Kalíforníu. Þau fóru með hana heim til sín og héldu nauðugri í tæpa tvo áratugi uns hún fannst fyrir tilviljun.

Philip nauðgaði stúlkunni ítrekað og eignaðist hún tvö börn í prísundinni. Eiginkonan fékk lífsstíðardóm og þarf að sitja í fangelsi í 36 ár áður en hún á möguleika á náðun. Philip var hinsvegar dæmdur í 431 árs fangelsi og mun hann því bera beinin í fangelsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×