Innlent

80% hjólreiðafólks telja leið sína örugga

Mynd/Pjetur
Tæplega 900 ábendingar bárust í hjólakönnun Reykjavíkurborgar sem opnuð var í tilefni af átakinu „Hjólað í vinnuna“ í maí. 80% þeirra sem tóku þátt telja hjólaleið sína til og frá vinnu eða skóla vera örugga, 7% telja hana óörugga og 13% voru á báðum áttum. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. 85% svarenda voru karlar og 15% konur, þá voru 65% svarenda á aldursbilinu 25-44 ára.

Þar kemur fram að um það bil 500 manns svöruðu könnuninni en markmið hennar er að safna gögnum um hjólaleiðir í borginni til að bæta þær. Upplýsingarnar nýtast við að fækka vástöðum og fylgja eftir hjólareiðaáætlun Reykjavíkurborgar en vefurinn er byggður á borgarvefsjá.

Könnunin verður opin í sumar og því getur hjólreiðafólk áfram sent ábendingar um úrbætur til Reykjavíkurborgar. Ennfremur er hægt að mæla vegalendir og sækja hjólaferil í GPX skrá fyrir GPS tæki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×