Innlent

Makríltorfur við Vestmannaeyjar

Makríltorfur hafa fundist við Vestmannaeyjar og hafa þrjú skip að minnsta kosti, veitt úr þeim og landað í Eyjum. Veiðarnar fara hinsvegar ekki í gang af fullum krafti fyrr en eftir sjómannadaginn, sem er á sunnudag.

Kvótinn er yfir 150 þúsund tonn og er stefnt að því að vinna sem allra mest af aflanum til manneldis, til að tryggja sem hæst afurðaverð. Allt frá smæstu trillum upp í stærstu togara verður beitt við veiðarnar í sumar, enda er heimsmarkaðsverð á makríl all gott um þessar mundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×