Bíó og sjónvarp

Skjaldborg tíunda árið í röð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hátíðin hefur heppnast vel undanfarin áratug.
Hátíðin hefur heppnast vel undanfarin áratug. vísir
Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda – verður haldin um hvítasunnuhelgina, 13. – 16. maí í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði.

Umgjörðin verður með sérstaklega glæstu sniði í ár þar sem hátíðin fagnar 10 ára afmæli. Skjaldborg hefur fyrir löngu sannað sig sem einn af mikilvægustu viðburðunum í almanaki íslenskrar kvikmyndagerðar. Hátðin hefur á liðnum áratug orðið að mjög áhugaverðum vettvangi fyrir íslenska heimildamyndagerð, enda hafa margar af athyglisverðustu myndum undanfarinna ára fyrst litið dagsins ljós á hátíðinni.

Stefnt er að því að frumsýna um 15 – 20 nýjar, íslenskar heimildamyndir en auk þess verða fersk og spennandi verk í vinnslu kynnt á hátíðinni. Þá verða hefðbundnir jafnt sem óhefðbundnir utandagskrárviðburðir á sínum stað. Opið er fyrir umsóknir til 24. mars en umsóknareyðublað og allar frekari upplýsingar er að finna á heimsíðu hátíðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.