Tónlist

Havnevik hitar upp

Norska söngkonan hitar upp fyrir Air í Laugardalshöll.
Norska söngkonan hitar upp fyrir Air í Laugardalshöll.
Norska söngkonan Kate Havnevik hitar upp fyrir frönsku hljómsveitina Air á tónleikum hennar í Laugardalshöll 19. júní. Havnevik, sem hitaði upp fyrir Air á tónleikaferð sveitarinnar í Bandaríkjunum og Kanada, hefur undanfarið vakið mikla athygli fyrir tónlist sína. Hefur henni verið lýst sem týnda hlekknum á milli Bjarkar, Goldfrapp og Air. Fyrsta sólóplata Havnevik, Melankton, kom út á síðasta ári við mjög góðar viðtökur. Uppselt er í stúku og palla á tónleikana í Höllinni en enn eru til miðar í stæði.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×