Innlent

Sæborg dró Dalaröst til hafnar

Dragnótabáturinn Sæborg ÞH kom með Dalaröst ÞH í drætti til Húsavíkur í gærkvöldi eftir að Dalaröst fékk veiðarfæri í skrúfuna þegar báturinn var að veiðum á Öxarfirði í gær.

Við það festist skrúfa Dalarastar, en kafarara voru sendir til að losa úr skrúfunni eftir að komið var til hafnar. Nokkurra manna áhöfn bátsins var aldrei í hættu, enda gott veður á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×