Viðskipti innlent

Iceweb-ráðstefnunni frestað en Íslensku vefverðlaunin standa

Tinni Sveinsson skrifar
Steindi og Auddi tilkynna tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2020 á Vísi í hádeginu á morgun.
Steindi og Auddi tilkynna tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2020 á Vísi í hádeginu á morgun.

Ákveðið hefur verið að fresta Iceweb-ráðstefnunni sem fara átti fram föstudaginn 13. mars. Ráðstefnan átti að vera í tengslum við Íslensku vefverðlaunin, sem verða haldin um kvöldið.

Ákvörðunin er tekin í framhaldi af því að annar aðalfyrirlesari ráðstefnunnar, Pablo Stanley, ákvað að ferðast ekki til Íslands vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Einnig hafa aðrir erlendir fyrirlesarar verið að endurskoða afstöðu sína til ferðalaga. Unnið er að því að finna ráðstefnunni nýja dagsetningu í lok september eða byrjun október.

Ekki stendur til að breyta neinu um dagskrá Íslensku vefverðlaunanna sem fara fram sama kvöld, föstudaginn 13. mars. Í tilkynningu frá SVEF, Samtökum vefiðnaðarins, kemur fram að fylgst verði með þróun mála í samfélaginu og brugðist við í takt við það.

Tilnefningar til vefverðlaunanna verða formlega kynntar hér á Vísi klukkan tólf í hádeginu á morgun. Auðunn Blöndal og Steindi Jr. tóku það verkefni að sér en þeir verða einnig kynnar á verðlaunahátíðinni sjálfri. 

Hægt er að kynna sér verðlaunin nánar á Facebook og nálgast miða hjá Tix.

Mörg verkefni berjast um hituna en á morgun verða tilnefnd þau fimm bestu í eftirfarandi flokkum: Fyrirtækjavefur ársins (fyrir lítil, meðalstór og stór fyrirtæki), Markaðsvefur ársins, Söluvefur ársins, Opinberi vefur ársins, Vefkerfi ársins, Samfélagsvefur ársins, Gæluverkefni ársins, Tæknilausn ársins, App ársins og Stafræn lausn ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×