Lífið

Júlíspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigga veit sínu viti þegar kemur að stjörnuspá .
Sigga veit sínu viti þegar kemur að stjörnuspá .
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir júlí má sjá hér fyrir neðan.

Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýti sér orkuna, klappi sér á bakið og elski lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 14:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar.

Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum toga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com 


Tengdar fréttir

Stjörnuspá Siggu Kling – Meyjan: Þarft ekki að sjá allar tröppurnar

Elsku hjartans Meyjan mín, nú er sumarið svo sannarlega að byrja í þínu lífi og þá erum við að tala um næstu mánuði, ekkert vera að spá í hvort þú öðlist frægð eða frama því ef þú slakar aðeins á þá raðast framtíðin upp á fullkominn máta.

Stjörnuspá Siggu Kling – Steingeitin: Mögnuð þrjú ár framundan

Elsku Steingeitin mín, þú ert sko sterkasti karakterinn sem ég þekki, en að vera svona sterkur gefur þér líka marga veiklundaða punkta og þessir punktar fá þig til þess að berjast við sjálfan þig því þér finnst þú ekki eins fullkominn og þú vilt vera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.