Tónlist

Emil tók lagið með Páli Óskari í eigin brúðkaupi: „Hann syngur eins og engill“

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Já, hann kom mér á óvart með því að syngja, hann syngur eins og engill,“ sagði Ása María Reginsdóttir, eiginkona knattspyrnumannsins Emils Hallfreðssonar, sem var til umfjöllunar í þættinum Atvinnumennirnir okkar í umsjón Auðuns Blöndal á Stöð 2 í gærkvöldi.

Emil tók lagið To Love Somebody eftir flutningi Michael Bolton og flutti það með engum öðrum en Páli Óskari Hjálmtýssyni. Upprunalega var lagið þó flutt af BeeGee

Sjá einnig: Emil um föður sinn heitinn: „Ég náði honum varla áður en hann dó“

Emil er greinilega virkilega góður söngvari en hér að ofan má sjá þegar hann tók þetta fallega lag til konunnar sem hann elskar. Þessi magnaði leikmaður leikur knattspyrnu með ítalska liðinu Hellas Verona og hefur verið þar frá árinu 2010.   

Hér að neðan má hlusta á lagið með Michael Bolton Hér að neðan má síðan hlusta á lagið þegar þeir Ray LaMontagne og Damien Rice tóku það saman á sínum tíma.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.