Viktor mjög góður í sigri GOG | Kristianstad tapaði óvænt Sindri Sverrisson skrifar 5. mars 2020 20:30 Viktor Gísli Hallgrímsson stóð sig vel á EM í janúar. vísir/epa
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti mjög flottan leik í marki GOG þegar liðið vann 34-26 útisigur á Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Íslendingaliðið Kristianstad missti óvænt af mikilvægum stigum í sænsku úrvalsdeildinni. Viktor Gísli varði 44% skota sem hann fékk á sig, eða 11 af 25 skotum, þar af eina vítið sem skotið var á hann. Óðinn Ríkharðsson skoraði 5 mörk fyrir GOG og Arnar Freyr Arnarsson 2. GOG komst með sigrinum upp fyrir Holstebro í 2. sæti deildarinnar með 32 stig, nú þegar þrjár umferðir eru eftir fram að úrslitakeppninni. Lemvig er í næstneðsta sæti. Í Svíþjóð varð Kristianstad að sætta sig við tap á útivelli, 32-28, gegn liðinu í 10. sæti, Hallby. Ólafur Guðmundsson skoraði þó 8 mörk fyrir Kristianstad en Teitur Örn Einarsson 1. Kristianstad er því með 42 stig í 3. sæti, nú tveimur stigum á eftir Alingsås. Aron Dagur Pálsson var ekki á meðal markaskorara hjá Alingsås sem vann eins marks sigur á Helsingborg í kvöld, 29-28. Malmö er á toppnum með 47 stig. Ágúst Elí Björgvinsson kom lítið við sögu í 35-29 tapi meistara Sävehof á heimavelli gegn Skövde. Sävehof er með 34 stig í 6. sæti nú þegar styttist í átta liða úrslitakeppnina.
Danski handboltinn Sænski handboltinn Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Fótbolti Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Enski boltinn Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Enski boltinn McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Enski boltinn Fleiri fréttir Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar HK endurheimtir tvo leikmenn sem urðu Íslandsmeistarar með liðinu Sveinbjörn fyrsti íslenski handboltamaðurinn til að spila í Ísrael Íslensku strákarnir með bakið upp við vegg Valsmenn fá Króata í heimsókn Haukar mæta Hönunum frá Finnlandi Valskonur fara til Litháen og Haukar til Belgíu Sonur Söndru og Daníels kominn í heiminn Mögnuð endurkoma tryggði íslensku strákunum stig Norðmenn tryggðu Íslandi sæti í 8-liða úrslitum Svíarnir of sterkir fyrir íslensku strákana Össur með tólf mörk í öðrum sigri strákanna í Slóveníu Tuttuguogsjö marka stórsigur í fyrsta leik á EM Hans syrgir pabba sinn en fer 42 ára á ÓL Töpuðu rétt eftir risasigurinn „Fannst ég ekki bæta mig nægilega mikið á þessum tveimur árum“ Stelpurnar hans Þóris völtuðu yfir ólympíumeistarana Úlfurinn snýr aftur til Kiel „Miklar tilfinningasveiflur sem tóku við“ Íslendingar mættu stundum hugsa sinn gang Markvörðurinn Ísak til Drammen Hanna Guðrún næsti aðstoðarþjálfari Stjörnunnar „Geri mér alveg grein fyrir því að þetta sé á einhvern hátt umdeilt“ Elín Klara valin í lið mótsins á HM Stelpurnar tryggðu sér sjöunda sætið Íslensku stelpurnar spila um sjöunda sætið eftir tap í spennuleik Þórsararnir halda áfram að skila sér heim Segir framlög til afreksíþrótta alltof lág: „Þessar 392 milljónir duga engan veginn“ Riðlar Meistaradeildarinnar klárir: Íslendingar áberandi í bestu deild í heimi Hetjuleg barátta dugði ekki til sigurs gegn Evrópumeisturunum Sjá meira