Bíó og sjónvarp

Hrútar hlutu ellefu verðlaun

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Sigurður Sigurjónsson, Grímur Hákonarson og Theódór Júlíusson úti í Cannes.
Sigurður Sigurjónsson, Grímur Hákonarson og Theódór Júlíusson úti í Cannes. vísir/hanna
Kvikmyndin Hrútar, kvikmynd Gríms Hákonarsonar, var ótvíræður sigurvegari Edduverðlaunanna sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica í kvöld. Myndin hlaut ellefu verðlaun m.a. annars sem kvikmynd ársins, leikstjórn ársins, leikara í aðal og aukahlutverki.

Myndin var tilnefnd alls til þrettán verðlauna en hlaut ekki verðlaun fyrir tónlist ársins og brellur ársins. Fyrrnefndu verðlaunin féllu í skaut Jóhanns Jóhannssonar, Hildar Guðnadóttur og Rutger Hoedemækers fyrir Ófærð en þau síðarnefndu hlutu Sigurjón F. Garðarsson og RVX Studios einnig fyrir Ófærð.

Ófærð hlaut næstflest verðalun eða þrjú talsins. Auk verðlaunanna tveggja sem áður hafa verið nefnd var þátturinn valinn leikið sjónvarpsefni ársins.

Réttur hlaut tvenn verðlaun. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir var valin besta leikkona í aðalhlutverki og Birna Rún Eiríksdóttir besta leikkona í aukahlutverki. Þá hlaut Ævar vísindamaður tvenn verðlaun, bæði fyrir besta barna- og unglingaefnið og sem lífstílsþáttur ársins.

Heiðursverðlaunin að þessu hlaut Ragna Fossberg sem hefur haft hendur í hári og andliti íslenskra leikara í hátt í hálfa öld.

Ellefu verðlaun Hrúta þýða að myndin er sú mynd sem hefur hlotið næstflest verðlaun á Edduverðlaunahátíðinni frá upphafi en metið á Vonarstræti, kvikmynd Baldvins Z, sem fékk tólf verðlaun í fyrra.

Kvikmyndirnar Fúsi, í leikstjórn Dags Kára, og Þrestir, eftir Rúnar Rúnarsson, voru tilnefndar til tólf og tíu verðlauna en fóru án verðlauna af hátíðinni.

Lista yfir verðlaunahafa kvöldsins má sjá hér fyrir neðan.

Hljóð ársins – Huldar Freyr Arnarson og Björn Viktorss (Hrútar)

Leikari í aðalhlutverki – Sigurður Sigurjónsson (Hrútar)

Leikari í aukahlutverki – Theódór Júlíusson (Hrútar)

Handrit ársins – (Hrútar)

Leikstjórn ársins – Grímur Hákonarson (Hrútar)

Gervi ársins – Kristín Júlía Kristjánsdóttir (Hrútar) 

Leikmynd ársins – Bjarni Massi Sigurbjörnsson (Hrútar)

Búningar ársins – Margrét Einarsdóttir og Ólöf Benediktsdóttir (Hrútar)

Kvikmyndataka ársins – Sturla Brandth Grovlen (Hrútar)

Klipping ársins – Kristján Loðmfjörð (Hrútar)

Kvikmynd ársins - Hrútar

Leikkona í aukahlutverki – Birna Rún Eiríksdóttir (Réttur)

Leikkona í aðalhluverki – Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir (Réttur)

Leikið sjónvarpsefni ársins – Ófærð 

Brellur ársins – Sigurjón F. Garðarsson, Daði Einarsson og RVX (Ófærð)

Tónlist ársins – Jóhann Jóhannson, Hildur Guðnadóttir og Rutger Hoedemækers (Ófærð)

Heimildarmynd ársins – Hvað er svona merkilegt við það (RÚV)

Skemmtiþáttur ársins – Árið er (RÚV)

Menningarþáttur ársins – Öldin okkar (RÚV)

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins – Kastljós (RÚV)

Sjónvarsmaður ársins – Helgi Seljan (RÚV)

Barna- og unglinga efni – Ævar vísindamaður

Lífstílsþáttur ársins – Ævar vísindamaður

Stuttmynd ársins – Regnbogapartý






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.