Bíó og sjónvarp

Hvíta rósin Sophie Scholl

Síðustu dagar Julia Jentsch í hlutverki hinnar hugrökku og trúuðu stúlku sem tók upp baráttu gegn herstjórninni.
Síðustu dagar Julia Jentsch í hlutverki hinnar hugrökku og trúuðu stúlku sem tók upp baráttu gegn herstjórninni.

Í kvöld verður sýning á þýsku kvikmyndinni Sophie Scholl – Síðustu dagarnir eftir Marc Rothemund í sal Þjóðarbókhlöðunnar og hefst kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Myndin var framleidd 2005 og hefur ekki verið sýnd hér á landi.

Í henni segir af örlögum Sophie Scholl en hún starfaði í andspyrnuhópnum Hvítu rósinni í München. Í febrúar 1943 tók hópurinn að dreifa flugritum gegn stríðinu og var Sophie handtekin af Gestapo. Hún var yfirheyrð af hörku en sagði aldrei til félaga sinna og neitaði sök.

Saga Hvítu rósarinnar var einstök hetjusaga og kvikmyndin markaði nokkur skil í þýskri kvikmyndagerð enda mikilsmetin: fékk tvo birni á Berlínarhátíðinni, var tilnefnd til Óskarsverðlauna, vann Bodil í Danmörku, tilnefnd til fjögurra Evrópuverðlauna og vann tvö þeirra, svo nokkuð sé nefnt af þeim 23 tilnefningum og 15 verðlaunum sem myndin aflaði. Hér er á ferðinni þýsk stórmynd um merkilegt efni og er það til marks um slaka dreifingu kvikmynd á Íslandi að hún skuli ekki vera sett í venjulegar sýningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.