Grindavík vann í Keflavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. febrúar 2009 21:04 Arnar Freyr Jónsson og félagar í Grindavík unnu góðan sigur á Keflavík í kvöld. Mynd/Stefán
Grindavík vann nauman sigur á Keflavík í Bítlabænum í kvöld, 85-82, eftir æsispennandi lokamínútur. Alls fóru þrír leiki fram í Iceland Express deild karla í kvöld. Snæfell vann ÍR á útivelli, 82-76 og FSu vann mikilvægan sigur á Breiðabliki í Kópavoginum, 96-77. Grindavík var með frumkvæðið í leiknum lengst af eftir að hafa náð fjögurra stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 28-23. Staðan í hálfleik var svo 50-46 og Grindavík hafði fimm stiga forystu þegar fjórði leikhluti hófst, 70-65. Fjórði leikhluti var æsispennandi en Keflavík náði að jafna metin þegar þrjár mínútur voru eftir þökk sé körfu frá Jóni Nordal Hafsteinssyni. En þá settu Grindvíkingar niður tvo þrista á næstu mínútunni. Fyrst Brenton Birmingham og svo Arnar Freyr Jónsson, fyrrum leikmaður Keflavíkur. Gunnar Einarsson svaraði fyrir Keflavík með öðrum þristi en leikurinn virtist úti þegar Grindavík komst í fjögurra stiga forystu þegar hálf mínúta var eftir. Eftir að Keflavík minnkaði muninn í tvö stig klikkaði hins vegar Arnar Freyr á tveimur vítaköstum í röð og Keflavík fékk boltann. Sverrir Sverrisson reyndi þriggja stiga skot en það geigaði. Í kjölfarið var aftur brotið á Arnari og í þetta sinn nýtti hann síðara vítaskotið. Munurinn því þrjú stig, Keflavík með boltann og tvær sekúndur eftir. Gunnar Einarsson reyndi þriggja stiga skot en aftur geigaði það. Niðurstaðan því sigur gestanna úr Grindavík. Brenton skoraði átján stig fyrir Grindavík, Páll Axel Valbergsson fimmtán og Nick Bradford fjórtán. Hjá Keflavík var Sigurður Þorsteinsson stigahæstur með 22 stig. Hörður Axel Vilbergsson skoraði 20 stig, Gunnar sautján og Sverrir fimmtán. Grindavík er tveimur stigum á eftir KR sem er í efsta sæti deildarinnar með 24 stig. Snæfell er í þriðja sæti deildarinnar með 24 stig, tveimur meira en Keflavík sem er í fjórða sæti. Breiðablik, ÍR, Tindastóll og FSu eru svo öll með fjórtán stig í 7.-10. sæti deildarinnar og því útlit fyrir spennandi lokasprett í deildinni um síðustu sætin í úrslitakeppninni.
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira