Samþykktu samhljóða að heimila hjónabönd samkynhneigðra Samúel Karl Ólason skrifar 27. maí 2015 20:46 Frá Nuuk. Vísir/EPA
Þing Grænlands hefur samþykkt samhljóða að taka upp dönsk lög sem gera samkynhneigðum kleift að ganga í hjónaband. Sú ákvörðun gerir Grænland 21. landið í heiminum þar sem aðilar af sama kyni geta gift sig. Einungis nokkrir dagar eru síðan Írar héldu þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem álíka lög voru samþykkt með miklum meirihluta. Írar voru fyrsta þjóðin til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um máli. Þessi umræða hefur nú skotið upp kollinum víða um heiminn. Í Ástralíu ætlar Verkamannaflokkurinn leggja fram frumvarp um að gera hjónabönd samkynhneigðra lögleg. Forsætisráðherra Ástralíu, Tony Abbot, lærði um tíma að vera kaþólskur prestur og er ekki hlynntur slíkum hjónaböndum samkvæmt Independent. Hann hefur þó gefið í skyn að hann muni leyfa þjóðaratkvæðagreiðslu um málefnið. Forsætisráðherra Ítalíu, Matteo Renzi, hefur heitið því að greiða götur samkynhneigðra. Hlutfall kaþólskra í Ítalíu er um 81 prósent, sem er álíka og í Írlandi. Atkvæðagreiðslan í Írlandi hefur þar að auki sett þrýsting á Norður-Írland um að gera slíkt hið sama. Þar að auki hefur ríkjum fjölgað í Bandaríkjunum þar sem hjónabönd samkynhneigðra eru leyfileg og þing Slóveníu samþykkt slík lög í mars. Forseti Slóveníu hefur þó ekki skrifað undir þau enn.
Tengdar fréttir Írar samþykkja hjónaband samkynhneigðra í þjóðaratkvæðagreiðslu Jafnréttismálaráðherra landsins segir Já-ið hafa sigrað. 23. maí 2015 09:43 Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Sonur tilræðismannsins handtekinn vegna barnaníðsefnis Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Enn einn leiðtogi Hezbollah felldur Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana „Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Sjá meira
Írar samþykkja hjónaband samkynhneigðra í þjóðaratkvæðagreiðslu Jafnréttismálaráðherra landsins segir Já-ið hafa sigrað. 23. maí 2015 09:43