Innlent

Efling lokar or­lofs­húsum sínum tíma­bundið

Eiður Þór Árnason skrifar
Íslendingar hafa verið hvattir til þess að halda sig heima um páskana. 
Íslendingar hafa verið hvattir til þess að halda sig heima um páskana. 

Stéttarfélagið Efling hefur tekið ákvörðun um að loka orlofshúsum sínum tímabundið og ógilda gerða samninga um leigu þeirra fram til 1. maí næstkomandi. 

Með þessu vill félagið koma til móts við tilmæli almannavarna og landlæknis um að fólk haldi sig heima um páskana og sleppi ferðalögum, er segir í tilkynningu frá félaginu. 

„Ég er mjög leið yfir að þurfa að taka þessa ákvörðun því að ég veit hvað dvölin í bústöðunum hefur mikla þýðingu fyrir mitt fólk enda hafa fæstir í hópi verkafólks aðgang að eigin bústað,“ er þar haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar. 

Greint hefur verið frá því orlofshúsbókanir hjá stéttarfélaginu VR hafi verið meiri í marsmánuði en árin áður. Á sama tíma hefur verið nokkuð um afbókanir á orlofshúsum á vegum Bandalags háskólamanna. Bæði félögin munu að öllum líkindum loka fyrir bókanir yfir páskana vegna faraldursins. 

Yfirvöld hafa hvatt landsmenn til þess að ferðast innanhúss í stað innanlands yfir páskana í næstu viku til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Víðir Reynisson hefur lýst yfir áhyggjum af því að ferðalög fólks yfir páskana geti valdið auknu álagi á heilbrigðiskerfi sem sé þegar á þönum vegna kórónuveirufaraldursins.

Efling, sem er annað fjölmennasta stéttarfélag landsins, hvetur eigendur einkasumarbústaða til að fara að fordæmi félagsins, fylgja tilmælum almannavarna og halda sig heima um páskana. 

Félagið hefur þegar tilkynnt þeim sem höfðu tekið orlofshús á leigu í apríl um ákvörðunina. 

Leigutökum verður greitt til baka og leitast við að koma til móts við óskir þeirra um leigu orlofshúsa síðar á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×