Menning

Bein út­­­­­sending: Heima­helgi­­­­­stund í Vída­líns­­­kirkju á pálma­sunnu­­dag

Tinni Sveinsson skrifar
Vídalínskirkja. Sóknarpresturinn sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir heimahelgistund í beinni útsendingu frá kirkjunni klukkan 17 í dag.
Vídalínskirkja. Sóknarpresturinn sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir heimahelgistund í beinni útsendingu frá kirkjunni klukkan 17 í dag.

Í dag, á pálmasunnudegi klukkan 17, verður heimahelgistund streymt heim til landsmanna frá Vídalínskirkju.

Eins og svo margt annað fellur allt messuhald og fermingar í Þjóðkirkjunni niður í vor vegna samkomubannsins og faraldurs kórónuveiru.

Á meðan á þessu stendur ætlar kirkjan að koma til heimila þess fólks sem getur ekki heimsótt hana og er hægt að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi og einnig á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir á kerfum Vodafone og Símans.

„Meðan samkomubann ríkir viljum við færa þjóðkirkjuna og hennar starf heim í stofu. Fólk getur átt þá hugleiðslu, bæn og kyrrð sem það annars myndi eiga í kirkjunni, heima hjá sér. Kirkjan hefur miklar skyldur gagnvart þjóðinni og þetta er ein leiðin til þess að uppfylla þær. Þrjár kirkjur ríða á vaðið, Laugarneskirkja, þá Lindakirkja og svo Vídalínskirkja, framhaldið spilum við svo eftir eyranu eftir því hvernig málin þróast,“ segir Pétur G. Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu. Formið á helgistundunum svipar til messu, með hugvekju, bæn og tónlist, en er þó knappara, eða 25 til 30 mínútur.

Klippa: Heima­helgi­stund í Vída­líns­kirkju

Sóknarpresturinn sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, leiðir heimahelgistundina. 

Í síðustu viku var heimahelgistund streymt frá Laugarneskirkju og Lindarkirkju. Hægt er að horfa á þær í tengdu greinunum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Heima-helgistundir í beinni á Vísi næstu sunnudaga

Heima-helgistundum á vegum þjóðkirkjunnar verður streymt hér á Vísi næstu fjóra sunnudaga. Fyrsta útsendingin verður frá Laugarneskirkju klukkan 17 á morgun, sunnudaginn 22. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.