Hvessir eftir hádegi og kólnar Atli Ísleifsson skrifar 6. apríl 2020 06:46 Spákort Veðurstofunnar eins og það leit út núna í morgun. Veðurstofan
Hríðarveðrið er smám saman að ganga niður norðvestanlands nú í morgunsárið. Víða verða austan 8 til 15 metrar á sekúndu fyrri part dags, rigning með köflum og hiti 2 til 8 stig. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Segir að það hvessi eftir hádegi, en þá gangi í suðvestan 13 til 20 metrar á sekúndu með skúrum og síðar éljum og kólnandi veðri. „Dregur úr vindi í nótt og í fyrramálið og styttir upp austanlands. Snýst í norðan strekking annað kvöld með dálítilli snjókomu norðantil, en hægari vindur og léttir til um landið suðvestanvert. Svo er útlit fyrir hæglætis veður og bjartviðri víða um land á miðvikudag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s. Víða líkur á éljum, en bjartviðri austanlands. Hiti um og undir frostmarki. Snýst norðlæga átt 8-15 um kvöldið með snjókomu norðantil á landinu, en hægari og léttir til syðra. Á miðvikudag: Norðlæg átt 3-8 og léttskýjað, en 8-13 og dálítil él norðaustantil á landinu framan af degi. Frost 1 til 6 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn. Á fimmtudag (skírdagur): Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt með þurru og björtu veðri og vægu frosti, en 8-13 og lítilsháttar skúrir með suðurströndinni, og hiti að 5 stigum þar. Á föstudag (föstudagurinn langi): Suðaustanátt og rigning eða slydda með köflum, hiti 1 til 5 stig. Bjartviðri og hiti um frostmark fyrir norðan. Á laugardag: Suðaustan- og austanátt og víða dálítil rigning eða slydda, úrkomumest suðaustanlands. Áfram þurrt fyrir norðan. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst. Á sunnudag (páskadagur): Suðvestlæg átt og skýjað, en bjartviðri norðaustantil. Áfram milt í veðri.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira