Erlent

Bangla­dess lokar af flótta­manna­búðir Ró­hingja vegna kórónu­veirunnar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þéttbýlt er í flóttamannabúðum Róhingja í Cox's Bazar.
Þéttbýlt er í flóttamannabúðum Róhingja í Cox's Bazar. EPA/SUMAN PAUL

Yfirvöld í Bangladess hafa lokað af landssvæði í suðurhluta landsins þar sem flóttamannabúðir Róhingja eru staðsettar. Meira en milljón Róhingjamúslima sem flúið hafa Mjanmar búa þar og er þetta gert í von um að koma í veg fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar.

Yfirvöld segja að enginn fái að fara frá eða til Cox's Bazar svæðisins. Engin tilfelli kórónuveirunnar hafa verið staðfest í flóttamannabúðunum en hjálparstofnanir hræðast að ef faraldurinn brjótist þar út yrði það illa búnum heilbrigðisstofnunum þar það um megn.

Flestir flóttamannanna komu í búðirnar eftir að mjanmarski herinn ofsótti Róhingja þar í landi árið 2017. Nærri 750 þúsund manns flúðu yfir landamærin til Bangladess þar sem hundruð þúsunda flóttamanna bjuggu þegar.

Í síðustu viku varaði Mannréttindavaktin (e. Human Rights Watch) við því að 350 þúsund manns í Mjanmar væru í sérstaklega viðkvæmri stöðu gagnvart kórónuveirunni.

Forsvarsmaður Cox's Bazar svæðisins, Kamal Hossain, tilkynnti aðgerðirnar seint í gærkvöldi þegar tilkynnt var um mikla fjölgun á kórónuveirusmitum í landinu. Tilfelli kórónuveirusmita í Bangladess hafa tvöfaldast á síðustu fimm dögum en nú eru þau meira en 200 talsins og 20 hafa látið lífið vegna COVID-19 sjúkdómsins.

Aðgangur hjálparstofnanna og starfsmanna þeirra að svæðinu hefur verið minnkaður til muna og verður innflutningur á matvælum einnig takmarkaður. Þá mun heilbrigðisþjónusta verða áfram til staðar að því gefnu að ítrustu varúðarráðstafanir verði gerðar. Þá munu allir sem eru ný komnir til landsins þurfa að fara í sóttkví áður en þeir fá að fara á svæðið.

Hjálparstofnanir hafa lýst yfir miklum áhyggjum yfir mögulegum smitum í búðunum vegna þess hve þéttbýlt er þar og lítil heilbrigðisþjónusta er til staðar, þar á meðal er fátt um sjúkrarúm fyrir alvarlega veika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×