Minnst 130 hermenn féllu í árás Talibana Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2017 08:50 Hermenn standa vörð nærri herstöðinni. Vísir/AFP
Minnst 130 hermenn féllu í skipulagðri árás Talibana á herstöð í Afganistan í gær. Þar af eru flestir ungir menn sem höfðu nýverið gengið í herinn og voru í þjálfun. Bardagar stóðu yfir í nokkrar klukkustundir og minnst tíu vígamenn létu lífið, en einhverjir þeirra sprengdu sig í loft upp. Vígamennirnir voru klæddir í herbúninga og komust inn í herstöðina áður en þeir hófu árás sína. Einn árásarmannanna var handsamaður samkvæmt BBC. Herstöðin er staðsett í borginni Mazar-e-Sharif í norðurhluta Afganistan en herstöðin er aðalbækistöð herliðsins sem sér um að gæta öryggis í Kunduz-héraði, þar sem mikil átök hafa geisað undanfarna mánuði. „Þetta voru ungir nýliðar sem höfðu komið til þess að fá þjálfun,“ sagði ónefndur hermaður við AFP fréttaveituna. Flestir hermenn í stöðinni voru við bænir þegar árásin hófst og margir aðrir voru í matsal herstöðvarinnar. Herinn segir að vígamennirnir virðist hafa sérstaklega ráðist á þá hermenn. Talið er mögulegt að tala látinna gæti hækkað enn frekar.
Mið-Austurlönd Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Fleiri fréttir Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Sjá meira