Tónlist

Will Ferrell er Eld­fjalla­maðurinn í fyrsta laginu úr Euro­vision­myndinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Will Ferrell og Rachel McAdams í hlutverkum sínum sem Íslendingarnir Lars Erickssong og Sigrit Ericksdottir.
Will Ferrell og Rachel McAdams í hlutverkum sínum sem Íslendingarnir Lars Erickssong og Sigrit Ericksdottir. Netflix

Nú fer að líða að því að Eurovision-kvikmynd Will Ferrell komi út á Netflix en frumsýningunni var frestað um tíma vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Eins og margir vita var Eurovision-myndin að stórum hluta tekin upp hér á landi.

Í gær kom út fyrsta lagið úr kvikmyndinni og ber það nafnið Volcano Man eða Eldfjallamaðurinn og nafn myndarinnar virðist vera Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga.

Aðalleikarar myndarinnar eru Will Ferrell og Rachel McAdams og leika þau Íslendingana Lars Erickssong og Sigrit Ericksdottir sem keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision. Pierce Brosnan leikur föður Ferrell sem heitir Erick Erickssong og söngkonan Demi Lovato kemur einnig fram. 

Nokkrir íslenskir leikarar fara einnig með hlutverk, þar á meðal Jóhannes Haukur Jóhannesson, Björn Stefánsson, Hannes Óli Ágústsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Björn Hlynur Haraldsson og Ólafur Darri Ólafsson.

 Hér að neðan má heyra lagið sjálft.

Will Ferrell kom fram í sjónvarpsþættinum Okkar 12 stig á RÚV í gær og tilkynnti um að Ítalía hefði fengið flest atkvæði hjá Íslendingum í þættinum.

 „Við nutum þess að taka upp á Íslandi. Þið eruð yndisleg. Fallegt land, fallegt fólk. Og guð minn góður hvað við elskuðum Húsavík,“ sagði Ferrell meðal annars.

Will Ferrell í þættinum Okkar 12 stig.RÚV

Í október síðastliðnum mætti Ferrell með hátt í 200 manns með sér og lagði kvikmyndatökuliðið Húsavík undir sig, við mikla ánægju bæjarbúa. 

Húsvíkingar fengu aukahlutverk í myndinni, öll borð á veitingastöðunum voru bókuð og pollabuxur og annar útvistarfatnaður seldist upp.

„Um einstakan atburð er að ræða sem allar líkur eru á að hafi mikil og jákvæð áhrif á ferðamennsku inn á svæðið til næstu ára ef vel tekst til,“ sagði sveitastjórinn Kristján Þór Magnússon kátur í tilkynningu til sveitunga sinna fyrir tökurnar.

Tónlistin í myndinni var í höndum tónskáldsins Atla Örvarssonar og var hún leikin af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og tekin upp í Hofi á Akureyri í mars.


Tengdar fréttir

Net­flix svarar sam­særis­kenningum um Daða Frey

Útibú Netflix á Bretlandi og Írlandi svaraði samsæriskenningasmið á Twitter í dag sem hafði kastað fram kenningu um tengsl kvikmyndar Will Ferrel um Eurovision við sigur Daða og Gagnamagnsins í Söngvakeppninni síðastliðinn laugardag.

Netflix beinir eyrum sínum að Akureyri

Bandaríska streymisveitan Netflix sendir nú verkefni í gríð og erg til Akureyrar. Sinfóníuhljómsveitin Sinfonia Nord á Akureyri, er ein af fáum, ef ekki sú eina í heiminum, sem getur sinnt kvikmyndatónlistarverkefnum þessa dagana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.