Körfubolti

Keflavíkurkonur hefndu bikartapsins og unnu í Ljónagryfjunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jaleesa Butler var góð í kvöld.
Jaleesa Butler var góð í kvöld. Mynd/Anton
Keflavík styrkti stöðu sína á toppi Iceland Express deildar kvenna eftir sex stiga útisigur á Njarðvík, 68-62, í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Keflavík er eftir leikinn með fjögurra stiga forskot á Njarðvík á toppi deildarinnar.

Njarðvík sló Keflavík út úr átta liða úrslitum Powerade-bikarsins á mánudagskvöldið en keflavíkurkonur nýttu sér það vel að geta hefnt fyrir tapið á sama stað aðeins tveimur dögum síðar.

Jaleesa Butler fór á kostum í Keflavíkurliðinu í kvöld en hún var með 35 stig og 18 fráköst. Pálína Gunnlaugsdóttir var næststigahæst með 12 stig. Lele Hardy var með 25 stig og 15 fráköst hjá Njarðvík og Shanae Baker-Brice skoraði 20 stig og tók 11 fráköst.

Keflavíkurkonur virtust vera í miklum hefndarhug í upphafi leiks því þær komust í 8-2 og 11-4 en þá fóru heimastúlkur í gang, skoruðu 18 stig í röð og komust í 22-11. Njarðvíkurliðið var síðan 25-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann.

Njarðvík skoraði fimm fyrstu stig annars leikhluta og komust fjórtán stigum yfir, 30-16, en Keflavíkurliðið náði að vinna sig inn í leikinn á ný og náði að minnka muninn í tvö stig, 35-33, þegar 73 sekúndur voru til hálfleiks. Lele Hardy endaði hálfleikinn á því að setja niður þriggja stiga körfu og Njarðvík var því 38-33 yfir í hálfleik.

Keflavíkurkonur byrjuðu seinni hálfleikinn frábærlega, skoruðu 12 af fyrstu 14 stigum þriðja leikhlutans og voru komnar með fimm stiga forskot, 45-40. Jaleesa Butler skoraði átta stig á þessum kafla og var alls með 10 stig í leikhlutanum. Keflavík var síðan 53-45 yfir fyrir lokaleikhlutann eftir að hafa unnið 3. leikhlutann 20-7.

Keflavíkurliðið náði mest fimmtán stiga forskoti í fjórða leikhlutanum, 66-51, en Njarðvík minnkaði muninn í sex stig fyrir leikslok án þess þó að ógna mikið sigri Keflavíkur.



Njarðvík-Keflavík 62-68 (25-16, 13-17, 7-20, 17-15)

Njarðvík: Lele Hardy 25/15 fráköst/6 stolnir, Shanae Baker-Brice 20/11 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 5/6 fráköst, Harpa Hallgrímsdóttir 4/6 fráköst, Erna Hákonardóttir 3, Salbjörg Sævarsdóttir 2, Petrúnella Skúladóttir 2, Ína María Einarsdóttir 1.

Keflavík: Jaleesa Butler 35/18 fráköst/5 varin skot, Pálína Gunnlaugsdóttir 12/5 stolnir, Hrund Jóhannsdóttir 4, Helga Hallgrímsdóttir 4/12 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 4/5 fráköst, Sara Rún  Hinriksdóttir 4/7 fráköst, Lovísa Falsdóttir 3/4 fráköst, Shanika Chantel Butler 2/7 fráköst/5 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×