Jól

Litla föndurhornið: Heimagerðir merkimiðar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kristbjörg Ólafsdóttir sér um Litla föndurhornið á Vísi.
Kristbjörg Ólafsdóttir sér um Litla föndurhornið á Vísi. Mynd/Vísir
Kristbjörg Ólafsdóttir sér um Litla föndurhornið, vikulegan lið hér á Vísi. Í desember ætlar hún að deila einu jólaföndri á dag með lesendum Vísis alveg fram að jólum. Í dag 1. desember sýnir hún hvernig á að gera sniðuga merkimiða. Við gefum Kristbjörgu orðið.

Kristbjörg ÓlafsdóttirMynd/Vísir
Ég er ein af þeim sem fæ ekki nóg af jólaföndri. Ég meina, bjöllur, glimmer, allar gjafirnar sem maður getur búið til, jólakortin sem þú getur föndrað, hvað er ekki að elska? Þannig að núna í desember munið þið sjá föndur frá mér á hverjum degi til jóla. Já, þið lásuð rétt, 24 verkefni. Eigum við ekki bara að byrja?

Föndur þarf ekki endilega að taka langan tíma eða vera flókið, og þetta er akkúrat dæmi um föndur sem er mjög einfalt, tekur engan tíma en er samt flott. Það sem þú þarft er trélím og Scrabble stafir, ég pantaði mína að utan. Svo þarftu að semja við lækninn þinn um nokkrar A-spýtur, þú veist þessar sem læknirinn leggur á tunguna á þér og þú kúgast, eða fara í Tiger og kaupa þær þar eða panta að utan eins og ég gerði.

Þetta þarftu að eiga!Mynd/Kristbjörg Ólafsdóttir
Byrjaðu á því að bora gat í spýtuna nokkuð ofarlega fyrir miðju. Ef þú vilt þá getur þú málað spýtuna, ég gerði það, ég vildi að stafirnir sæjust meira. Svo er bara að líma stafina á spýturnar og þræða borða í gegnum gatið á spýtunni og þú ert kominn með ótrúlega flota merkimiða á pakkann og/eða skraut á jólatréð.

Mynd/Kristbjörg Ólafsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×