Sport

Sportið í dag: Pepsi Max-teymið kynnt, Patrekur, Aron Bjarna og grill í Keflavík | Í beinni á Vísi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Henry Birgir og Kjartan Atli bjóða upp á flottan þátt í dag.
Henry Birgir og Kjartan Atli bjóða upp á flottan þátt í dag. vísir/vilhelm

Sportið í dag verður ekki af verri endanum. Þátturinn hefst klukkan 15:00 á Stöð 2 Sport. Hann verður einnig sýndur í beinni útsendingu á Vísi.

Í þætti dagsins verður teymi Stöðvar 2 Sports í kringum Pepsi Max-deildirnar kynnt. Nýr umsjónarmaður uppgjörsþáttarins karlamegin sest í stólinn hjá Henry Birgi og Kjartani Atla. 

Patrekur Jóhannesson er þegar byrjaður að láta til sín taka sem nýr þjálfari handboltaliðs Stjörnunnar. Hann kemur þó að fleiru í Garðabænum og fer yfir þau mál. 

Púlsinn verður tekinn á Valsaranum Aroni Bjarnasyni sem er í láni á Hlíðarenda en hann spilaði í Ungverjalandi síðasta vetur. 

Svo verður kíkt í klefann hjá körfuboltaliði Stjörnunnar og þátturinn verður einnig í grillveislu í Keflavík. Föstudagsfjör í Sportinu í dag.

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×