Lík þriggja barna fundust í Dyflinni Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. janúar 2020 12:08 Frá vettvangi við heimili barnanna og móður þeirra í Dyflinni í gærkvöldi. Vísir/getty
Lík þriggja barna fundust í húsi í úthverfi Dyflinnar á Írlandi í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að lögregla rannsaki andlát þeirra sem morð, að því er fram kemur í frétt Irish Times. Kona, sem talin er móðir barnanna, fannst í miklu uppnámi fyrir utan húsið og var flutt á sjúkrahús til skoðunar. Lögregla vonaðist til þess að hægt yrði að ræða við konuna í dag. Hún er talin búa yfir „mikilvægum upplýsingum“ um málið. Börnin voru fjögurra, átta og tíu ára; tveir drengir og ein stúlka. Lögregla segir rannsóknina á frumstigi og lýsir andláti barnanna sem „skyndilegu“ og „óútskýrðu“. Ekki hafa fundist neinar vísbendingar um að nokkur utanaðkomandi hafi verið í húsinu þegar andlát barnanna bar að. Þá fundust engin merki um innbrot. Gengið er út frá því að börnin hafi búið í húsinu með móður sinni. Haft er eftir nágrönnum í frétt Irish Times að málið sé reiðarslag fyrir hverfið.
Írland Mest lesið Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki Erlent „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Erlent Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Innlent Hundsbitum fari fjölgandi Innlent Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Erlent Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Innlent Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Innlent „Fólk er einfaldlega hrætt“ Erlent Fleiri fréttir Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Eldur kviknaði í ráðuneyti Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Herforingi handtekinn eftir valdaránstilraun Valdaránstilraunin virðist hafa mistekist Sjá meira