Sunnanátt morgundagsins mun minna okkur á blóm í haga og langa sumardaga Atli Ísleifsson skrifar 16. apríl 2020 07:07 Spákortið fyrir hádegið eins og það leit út í morgun. Veðurstofan
Hæð er nú stödd suður af landinu sem þokast austur en við Nýfundnaland er lægð á hægri leið til norðausturs. Útlit er fyrir að þessi veðrakerfi muni stjórni veðrinu hér á landi fram á laugardag. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að reikna megi með hægt vaxandi suðlægri átt í dag og þykkni upp með dálítilli vætu en léttskýjað verði um landið norðaustanvert. Þannig megi búast við 3 til 10 metrum á sekúndu í dag, en sunnan 8 til 15 í kvöld. „Strekkingssunnanátt í kvöld og á morgun með rigningu á köflum en hægari og þurrt austantil á landinu. Hiti víða 3 til 8 stig í dag en sunnanáttin beinir hlýrra lofti til okkar og minnir okkur á blóm í haga og lánga sumardaga, hiti 6 til 13 stig á morgun, hlýjast á Austurlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Yfirlit: Vegir eru víðast hvar auðir þótt finna megi hálkubletti á fáeinum stöðum og þá helst á fjallvegum. Upplýsingasíminn 1777 er opinn kl. 06:30-22:00. #færðin— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) April 16, 2020 Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan 10-15 m/s en hægari um landið austanvert. Súld með köflum en víða léttskýjað norðan- og austanlands. Sunnan 13-18 vestantil um kvöldið. Hiti 6 til 11 stig að deginum. Á laugardag: Sunnanátt, víða 10-15 m/s. Bjartviðri norðaustantil á landinu, en súld eða dálítil rigning sunnan- og vestanlands. Hiti 4 til 9 stig. Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt og dálítil rigning, en þurrt norðaustanlands. Hiti 1 til 8 stig, svalast norðvestantil. Á mánudag: Suðlæg átt og ringing með köflum, en úrkomulítið norðanlands. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag og miðvikudag: Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en væta af og til með vesturströndinni. Milt í veðri.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira