Lífið

Ástrós fann ástina aftur: „Bjartsýn og blússandi hamingjusöm“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ástrós Rut sagði frá sambandinu á samfélagsmiðlum í gær.
Ástrós Rut sagði frá sambandinu á samfélagsmiðlum í gær. Instagram/Ástrós Rut
Ástrós Rut Sigurðardóttir hefur fundið ástina á ný, en hún missti Bjarka Má Sigvaldason eiginmann sinn eftir erfiða baráttu við krabbamein. Ástrós sagði frá nýja sambandi sínu á samfélagsmiðlum í gær, en sá heppni heitir Davíð Örn Hjartarson og hefur verið vinur hennar langan tíma. Hann á fyrir sjö ára son og Ástrós á eina eins árs dóttur sem hún eignaðist með Bjarka. 

„Ég ákvað að setja mína eigin hamingju í fyrsta sæti og fylgja hjartanu, óháð því hvenær rétti tíminn er samfélagslega séð. Ef að ég er hamingjusöm þá er dóttir mín hamingjusöm og það er fyrir öllu,“ segir Ástrós um sambandið í samtali við Vísi.

Hún segir að þau hafi verið vinir í 15 ár. 

„Við kynntumst þegar sameiginlegir vinir okkar voru að deita og við vorum alltaf þriðja hjólið.“

Draumur af manni

Í viðtali við Ísland í dag eftir fráfall Bjarka síðasta sumar, talaði Ástrós um að hún vildi eignast fjölskyldu á ný.

„Ég er búin að finna vel fyrir því síðustu vikur að mér langar að halda áfram með mitt líf.“

Á Instagram skrifar Ástrós að eftir stærsta hjartasár lífs síns hafi hún ákveðið að standa upp, rétta úr sér og biðja lífið um annað tækifæri í lífinu og að fá að upplifa fjölskyldulífið sem hana hafði alltaf dreymt um.

„Aldrei hefði ég trúað því að svarið kæmi svona fljótt en þessi draumur af manni er svo sannarlega kominn til að vera. Stóri plúsinn er að það fylgir einn 7 ára prins sem ég dýrka og dái. Ég geng því inn í nýjan áratug mjög bjartsýn og blússandi hamingjusöm. Ég veit að Bjarki stendur með mér enda er hann í hjarta og huga mér alla daga og passar uppá okkur stelpurnar. Hann er feginn og þakklátur að við mæðgur erum ánægðar og í góðum höndum.“

Viðtalið við Ástrós má finna í spilaranum hér að neðan. 



Gríptu tækifærið

Ástrós segist hafa lært ótrúlega mikið á lífið síðustu ár og deilir áfram nokkrum lykilatriðum í Instagram færslu sinni. 

„1. Gríptu tækifærið þegar það berst.

2. Njóttu stundarinnar og helst gleymdu þér alveg í henni.

3. Ekki pæla í hvað öðrum finnst, þú skiptir þig máli.

4. Fjölskyldan og sannir vinir eru aðalmálið. Vertu til staðar eins og þú vilt að þau séu til staðar fyrir þig.

5. Elskaðu skilyrðislaust, engar hömlur, enginn efi. Vertu dugleg/ur að segja það.

6. Það er alltaf eitthvað sem maður getur verið þakklátur fyrir.“

 

 
 
 
View this post on Instagram
Eftir stærsta hjartasár lífs míns ákvað ég að standa upp, rétta úr mér og biðja Lífið um tvennt: 1. Að fá annað tækifæri í hamingju. 2. Að fá að upplifa fjölskyldulífið sem mig hefur alltaf dreymt um. Aldrei hefði ég trúað því að svarið kæmi svona fljótt en þessi draumur af manni er svo sannarlega kominn til að vera. Stóri plúsinn er að það fylgir einn 7 ára prins sem ég dýrka og dái Ég geng því inn í nýjan áratug mjög bjartsýn og blússandi hamingjusöm. Ég veit að Bjarki stendur með mér enda er hann í hjarta og huga mér alla daga og passar uppá okkur stelpurnar. Hann er feginn og þakklátur að við mæðgur erum ánægðar og í góðum höndum. Ég er búin að læra svo ótrúlega mikið á Lífið síðustu ár, ef það er eitthvað sem ég get deilt áfram þá er það: 1. Gríptu tækifærið þegar það berst. 2. Njóttu stundarinnar og helst gleymdu þér alveg í henni. 3. Ekki pæla í hvað öðrum finnst, þú skiptir þig máli. 4. Fjölskyldan og sannir vinir eru aðalmálið. Vertu til staðar eins og þú vilt að þau séu til staðar fyrir þig. 5. Elskaðu skilyrðislaust, engar hömlur, enginn efi. Vertu dugleg/ur að segja það. 6. Það er alltaf eitthvað sem maður getur verið þakklátur fyrir. Ást og kærleikur

A post shared by Ástrós Rut Sigurðardóttir (@astrosrut) on Mar 8, 2020 at 2:36pm PDT


Tengdar fréttir

„Ég er aldrei að fara að gleyma honum“

Ástrós Rut missti eiginmann sinn í júní á þessu ári eftir sjö ára baráttu við krabbamein. Hún ræðir kveðjustund þeirra, sorgina, fósturmissi og framtíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.