Eddie Hall sendir Hafþóri grjóthörð skilaboð og sakar „Fjallið“ um óheiðarleika Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2020 10:03 Arnold Sports Festival 2016 - Day 3 COLUMBUS, OH - MARCH 05: "The Mountain" of Game of Thrones Hafthór 'Thor' Björnsson competes in the Strongman Classic at the Arnold Sports Festival 2016 on March 5, 2016 in Columbus, Ohio. (Photo by Dave Kotinsky/Getty Images)
Eddie Hall og Hafþór Júlíus Björnsson mætast í hnefaleikahringnum í Las Vegas á næsta ári og þeir eru löngu byrjaðir að hita upp fyrir þennan óvenjulega bardaga á milli þessara tröllvöxnu manna. Eddie Hall ákvað nú síðast að senda Hafþóri grjóthörð skilaboð á Youtube þar sem hann sakar íslenska fjallið um óíþróttamannslega rógsherferð gagnvart sér og titlinum sterkasti maður heims sem Hall vann árið 2017. UNSEEN FOOTAGE From WSM 2017- Was Hafthor Bjornsson Cheated Out Of Winning?Eddie Hall Responds https://t.co/snnIOAxx6K #bodybuilding #fitness— Fitness Volt (@fitness_volt) May 17, 2020 Hafþór Júlíus hefur lengi talað um það að hann hafi verið rændur þessum heimsmeistaratitli fyrir þremur árum en Eddie Hall svarar nú með því að saka íslenska „Fjallið“ um að svindal á sér og Hall telur sig vera búinn að graf upp myndband sem sanni það. „Eftir að ég vann titilinn sterkasti maður heims þá gat ekki beðið eftir því að snúa aftur heim til Bretlands og deila titlinum með mínu fólki. Áður en mér tókst að komast heim til fjölskyldu minnar til að segja þeim fréttirnar þá tók einn maður óíþróttamannslega hegðun og óheiðarleika upp á annað plan,“ sagði Eddie Hall sem sagði að allir miðlar heimsins höfðu hjálpað Hafþóri að dreifa þessum rógburði. watch on YouTube Hafþór Júlíus Björnsson kvartaði þar yfir því að hafa verið rændur titlinum sterkasti maður heims en Eddie Hall vann með einu stigi. „Undanfarin þrjú ár hef ég í stað þess að svara spurningum um hvernig ég vann marga af bestu kraftajötnum sem hafa lifað, og Hafþór Björnsson er á þeim lista, þá er fólk að efast um það hvort ég hafi í raun unnið titilinn eða ekki,“ sagði Eddie Hall og hélt áfram: „Hafþór Björnsson hefur verið að sverta orðspor mitt og dómarans Colin Bryce undanfarin þrjú. Af því að hann var „The Mountain“ úr Game of Thrones og stór sjónvarpsstjarna þá hlustaði fólk á hann og trúði honum. Ég er búinn að fá nóg af því að hlusta á þá vitleysu að Hafþór Björnsson hafi verið rændur og að dómarinn hafi svindlað á honum,“ sagði Eddie Hall. „Í dag fann ég myndband sem á að enda allt slíkt tal og eyða um leið öllum efasemdunum um minn sigur. Ég áttaði mig þá á því hversu örvæntingarfullur einn maður getir verið þegar hlutirnir falla ekki með honum. Þetta myndband sýnir hvað virkilega gerðist á bak við tjöldin í keppninni árið 2017. Það er komi tími til að sannleikurinn komi í ljós og að við látum myndirnar tala,“ sagði Eddie Hall sem talaði síðan beint til Hafþórs. The two former World's Strongest Man champs are set to battle in the ring in 2021. https://t.co/9uVZXZhKy5— Men's Health Mag (@MensHealthMag) May 11, 2020 „Hafþór Björnsson. Þú og já mennirnir þínir ættuð að skamma ykkar. Orð eru ódýr og ég hundleiður á því að hlusta á afsakanirnar frá ykkur. Þú varst einu sinni góður maður og ótrúlegt en satt þá leit ég einu sinni á þig sem vin. Já-mennirnir hafa eitrað fyrir þér,“ sagði Eddie Hall. „Já-mennirnir þínir fá ekki að vera með þér í hringum á næsta ári þegar við boxum. Ef þeir verða með þá mun ég berja þá í klessu þangað til þeir breytast í nei-menn,“ sagði Eddie Hall sem sýndi síðan upptöku frá Giants live en hún var gerð af sögn Eddie Hall af sjálfstæða kvikmyndagerðarmanninum Andy Quinn sem er að gera heimildarmynd um allt það sem gekk á í keppninni Sterkasti maður heims árið 2017. Eddie Hall vísaði síðan í myndband sem má sjá byrja hér fyrir neðan. Hann bað alla um að dæma sjálfa um það sem gerðist en myndbandið byrjar á því að Hafþór Július Björnsson neitar að taka í hendina á Eddie Hall á verðlaunapallinum.
Kraftlyftingar Box Mest lesið Snéru heim eins og rokkstjörnur og komust á súluna á Astró Fótbolti Köstuðu blysum en segja hina hafa hrækt og hellt bjór á leikmenn Handbolti Fékk fjóra bakka af eggjum fyrir að vera maður leiksins Fótbolti Íslendingalið í bullandi tapi og getur ekki sótt fleiri stjörnur Handbolti Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Íslenski boltinn Hvorki zombie-bit né tattú Fótbolti Sjáðu nýjan þjálfara Íslands kynna sig Körfubolti Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Körfubolti Glódís ekki með í landsleikjunum Fótbolti Pekka Salminen nýr landsliðsþjálfari Körfubolti Fleiri fréttir Brast ítrekað í grát og neitar öllum ásökunum um ofbeldi Í beinni: Haukar - Grindavík | Erfitt verkefni fyrir Grindvíkinga Í beinni: Keflavík - Tindastóll | Úrslitakeppnin hefst Saka klár í slaginn á ný McIlroy annar til að þéna hundrað milljónir á PGA-mótaröðinni Vildu sjá Kjartan Atla og Rúnar lenda í slag eins og í NBA Íslendingalið í bullandi tapi og getur ekki sótt fleiri stjörnur Eldmóður í nýjum þjálfara: „Meira en spenntur“ Fékk fjóra bakka af eggjum fyrir að vera maður leiksins Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Valgerður ekki af baki dottin: „Ég ætla í stóru beltin“ Hvorki zombie-bit né tattú Pekka Salminen nýr landsliðsþjálfari Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ Sjáðu nýjan þjálfara Íslands kynna sig Ekki þess virði að taka áhættu með Glódísi „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Glódís ekki með í landsleikjunum Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni Vill hópfjármögnun fyrir Antony Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Lýsa miklum áhuga Arsenal á manninum sem Man. Utd þráir Köstuðu blysum en segja hina hafa hrækt og hellt bjór á leikmenn Snéru heim eins og rokkstjörnur og komust á súluna á Astró Hafa engar áhyggjur af hugarfari Njarðvíkinga Dagskráin í dag: Úrslitakeppnin af stað Búinn að skora gegn öllum en bíður enn eftir titli Haaland yfirgaf völlinn á hækjum og í spelku Tryggvi með rifu í vöðva og verður frá næstu vikur Napólí heldur pressunni á toppliði Inter Sjá meira