Innlent

Fjórir fluttir á slysadeild eftir árekstur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn á Reykjanesbraut.
Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn á Reykjanesbraut. Vísir/Vésteinn

Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir umferðaróhapp á Reykjanesbraut norðan við Smáralind í Kópavogi upp úr klukkan ellefu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um að ræða árekstur tveggja bíla.

Áreksturinn á Suðurlandsbraut varð rétt í þann mund sem klukkan sló tólf.Vísir

Þá varð sömuleiðis umferðaróhapp á Suðurlandsbrautinni nærri Grensásvegi klukkan tólf þar sem tveir bílar komu við sögu. Þar virðast ekki hafa orðið slys á fólki og er verið að hreinsa til á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×