Lífið

Ananasmálið tröllríður Seltjarnarnesi

Stefán Árni Pálsson skrifar

Auður Jónsdóttir, rithöfundur, setti fram heldur betur áhugavert tíst fyrir nokkrum dögum þar sem hún segir að ef maður setur ananas í körfuna á ákveðnum tíma í Hagkaupum á Eiðistorgi sé maður að gefa merki um að maður sé til í makaskipti.

Auður hafði varann á og vísaði í orð ónefndrar vinkonu sinnar.

Tístið vakti gríðarlega athygli og fjallaði mbl.is meðal annars um málið. Í kjölfarið birti Hagkaup athyglisverða færslu á Facebook þar sem auglýst var að ferskur ananas hafi verið að lenda í verslunum þeirra.

Gísli Örn Garðarsson, leikari, birti síðan í gær mynd á Facebook þar sem hann segist hafa fundið ananas en týnt eiginkonu sinni Nínu Dögg Filippusdóttur.

Auður Jónsdóttir deilir frétt um málið á Facebook-síðu sinni og þar hefur skapast töluverð umræða meðal Seltirninga. 

Þar segir hún: „Ja, hérna, spurning hvort ég hætti mér út á Seltjarnarnes á næstunni.“

Karl Pétur Jónsson bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi skilur ekkert í málinu.

„Hvernig hefur mér tekist að búa á Nesinu í 16 ár án þess að vita þetta?,“ skrifar Karl við færslu Auðar og fleiri fylgja á eftir.

Listahjónin Reynir Lyngdal og Elma Lísa Gunnarsdóttir eru ekki alveg sammála þegar kemur að stóra ananasmálinu og segir Elma á léttu nótunum: „Út af hverju heldur þú að við fluttum á Nesið?“

Reynir segist ekki einu sinni fíla ananas en hann leikstýrði Áramótaskaupinu og Elma Lísa kom þar við sögu sem leikkona.

Fjölmiðlakonan Sigríður Pétursdóttir segir: „Eins gott að mér finnst ananas vondur.“

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir fyrrverandi þingkona segist núna skilja hvers vegna Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, talaði svona gegn ananas á sínum tíma en hann bjó á Seltjarnarnesinu áður en hann flutti á Bessastaði.

Píratinn Sara Óskarsson er sár: „Bjó á nesinu í 10 ár. Aldrei boðið! Ekki eitt skipti. Hurtful..“

Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason slær á létta strengi: „Ég hef lengi þóst vera fyndinn þegar ég spyr fólk hvort það sé úr Graðabænum - hvað er hægt að kalla Seltjarnarnes?“

Þá mætir Sara aftur á svæðið og svarar Agli: „AnaNes“

Greinilegt er að mikil umræða hefur skapast um stóra ananasmálið á Seltjarnarnesinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.