Viðskipti erlent

Hagkerfi Kína dróst saman í fyrsta sinn í áratugi

Samúel Karl Ólason skrifar
Samdrátturinn var 6,8 prósent en á sama fjórðungi í fyrra var 6,4 prósenta hagvöxtur í Kína.
Samdrátturinn var 6,8 prósent en á sama fjórðungi í fyrra var 6,4 prósenta hagvöxtur í Kína. AP/Mark Schiefelbein

Hagkerfi Kína dróst saman á fyrsta fjórðungi þessa árs. Það er í fyrsta sinn sem það gerist síðan yfirvöld landsins byrjuðu að taka hagtölur saman yfir ársfjórðunga árið 1992. Samdrátturinn var 6,8 prósent en á sama fjórðungi í fyrra var 6,4 prósenta hagvöxtur í Kína.

Hagfræðingar höfðu búist við slæmum samdrætti, þar sem gripið var til umfangsmikilla aðgerða gegn útbreiðslu nýju kórónuveirunnar fyrr á þessu ári og fólki víða gert að halda sig heima. Hann er þó verri en gert hafði verið ráð fyrir, samkvæmt frétt BBC.

Tölurnar þykja til marks um að það verði erfiðara en áður hefur verið talið að koma atvinnulífinu og hagkerfinu í sama horf á nýjan leik.

South China Morning Post segir þetta í fyrsta sinn sem samdráttur verði í Kína síðan 1976.

Meðalhagvöxtur Kína á síðustu tveimur áratugum hefur verið um níu prósent. Sérfræðingar hafa þó lengi og ítrekað dregið nákvæmni hagtalna frá Kína í efa.

Yfirvöld landsins hafa sagst ætla að auka neyslu í Kína en það er ekki eina vandamálið. Samdráttur hagkerfa víða um heim og minni neysla hefur og mun áfram koma verulega niður á útflutningi frá Kína. Það gæti gert hagkerfi landsins erfitt að ná sér aftur á strik, ef svo má að orði komast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×