Innlent

Ó­prúttinn aðili boðaði fólk í sótt­kví undir fölsku flaggi

Eiður Þór Árnason skrifar
Síðan hefur í nú verið tekin niður að ósk embættisins.
Síðan hefur í nú verið tekin niður að ósk embættisins. Getty/NurPhoto - Skjáskot

Eitthvað hefur verið um það að unglingar hafi fengið skilaboð á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem óprúttinn aðili óskar eftir því í nafni landlæknis að viðkomandi fari í sóttkví.

Embætti landlæknis hefur fengið veður af síðunni og tilkynnt hana til Facebook, eiganda Instagram. Hún hefur í kjölfarið verið tekin niður.

RÚV fjallaði fyrst um málið og vísar þar í skilaboð frá Instagram-notandanum sem gekk undir heitinu landlaeknir. Í þeim er einstaklingur beðinn um að fara í tólf daga sóttkví vegna samskipta sinna við nafngreindan aðila sem reyndist vera sýktur.

Fólk aldrei boðað í sóttkví á samfélagsmiðlum

Aðspurður segist Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, að embættið hafi ekki orðið vart við fleiri síður af þessu tagi.

„Við vitum ekkert hvort að þetta hafi valdið einhverjum skaða eða eitthvað slíkt, að einhver hafi farið í sóttkví án þess að þurfa að fara í sóttkví, en það sem mér finnst kannski mikilvægt fyrir fólk að vita er að þeir sem eru boðaðir í sóttkví munu fá boð um það símleiðis eða með öðrum hætti í gegnum almannavarnir.“

Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis.Vísir/Vilhelm

„Við myndum aldrei koma svona upplýsingum áleiðis í gegnum samfélagsmiðla, það mun ekki gerast undir nokkrum kringumstæðum.“

Embættið hefur að hans sögn verið í hjálplegum samskiptum við fulltrúa Facebook í dag og fengið ráð um það hvernig koma megi í veg fyrir að þetta gerist aftur.

Kjartan segir það jafnvel koma til greina að Embætti landlæknis stofni sinn eiginn reikning á Instagram.

Búið að tryggja öryggi annarra samfélagsmiðlareikninga

„Við náttúrulega erum á Facebook og Twitter, við höfum ekki verið virk á Instagram og þess vegna sá líklega einhver tækifæri í þessu.“

Einnig sé búið að tryggja öryggi annarra samfélagsmiðlareikninga á vegum embættisins.

„Þetta er snýst alls ekki um það að einhver hafi brotist inn í neitt eða neitt slíkt. Það hefur bara einhver séð færi á því að við værum ekki með aðgang á Instagram og einfaldlega stofnaði slíkan.“


Tengdar fréttir

Landspítali takmarkar ekki fundi eða samneyti starfsfólks

Fleiri en hundrað starfsmenn Landspítalans eru nú í einangrun eða sóttkví vegna kórónuveirunnar. Ekki hefur þó verið gripið til sambærilegra aðgerða á spítalanum eins og sum fyrirtæki og stofnanir hafa ráðist í til að takmarka smithættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×