Kynskipt réttvísi og ofbeldi gegn börnum Dofri Hermannsson skrifar 13. mars 2020 13:00 Rannsóknir sýna að réttarkerfið tekur mjög ólíkt á afbrotum fólks eftir því hvort þau eru framin af körlum eða konum. Konur eru mun síður ákærðar en karlar fyrir sambærileg brot og hljóta mun styttri dóma komi yfir höfuð til ákæru. Þetta á sér skýringar í rótgrónum og úreltum viðhorfum samfélagsins til bæði karla og kvenna. Þessi úreltu viðhorf eru gjarna notuð til að kynda undir tortryggni í garð feðra um leið og dregin er upp helgimynd af mæðrum. Þessi viðhorf stangast á við rannsóknir sem sýna að börn eru ekkert síður beitt ofbeldi af mæðrum sínum en feðrum. Viðhorf sem þessi múra börn sem beitt eru ofbeldi af mæðrum sínum inn í ofbeldissambandinu með vantrú, þögn og skömm. Ein tegund alvarlegs ofbeldis gagnvart börnum – og foreldrum – er það þegar annað foreldrið, meðvitað eða ómeðvitað, eitrar samband barns við hitt foreldri sitt. Það skaðar börn sem eru þolendur foreldraútilokunar þegar þessi tegund ofbeldis er dregin niður í svað kynjafordóma. Þegar látið er eins um sé að ræða stríð á milli tálmunarmæðra og vafasamra feðra. Það er fjarri sanni. Hið rétta er að bæði kynin beita þessu ofbeldi í svipuðum mæli og á síðasta ári leituðu fleiri útilokaðar mæður til Foreldrajafnréttis en útilokaðir feður. Þeim er enginn greiði gerður með jafn fordómafullri nálgun og raun ber vitni. Upp á síðkastið hefur mikil umræða átt sér stað í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum í tengslum við dómsmál þar sem móðir ruddist inn á heimili föður ásamt sambýlismanni sínum og efndi þar til átaka. Málið er afar áhugavert með tilliti til þeirrar tilhneigingar réttarkerfisins að horfa í gegnum fingur sér gagnvart ofbeldi kvenna en taka hart á körlum. Til að skora kynjafordóma sína á hólm getur verið gott að skipta um kyn á persónum. Ef við gerum það við dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 19. desember 2018, lítur málið svona út: Faðir brýst inn á heimili móður Foreldrar tíu ára barns hafa aldrei búið saman en barnið hefur dvalið nokkuð jafnt hjá báðum foreldrum. Faðirinn er með lögheimilið en það fer mjög eftir duttlungum hans hvernig umgengni er háttað. Nýlega kom hann í veg fyrir að barnið færi með móður sinni og systkinum til útlanda í umgengnistíma móður. Þegar móðir kærði brot á umgengni til sýslumanns túlkaði faðirinn það sem árás á sig. Samskiptin versna. Móðir lætur í ljós áhyggjur af því að barnið sé að fara óbólusett í fjarlægan heimshluta og ýjar að því að hún gefi ekki leyfi sitt fyrir þessu ferðalagi barnsins. Faðir á að sækja barnið „um miðjan dag“ en mætir kl. 13 ásamt sambýliskonu sinni sem jafnframt er lögmaður hans. Sambýliskonan hefur (sem lögmaður föður) fengið lögregluna til að vera til staðar vegna ótta um að barnið verði ekki afhent. Að lögregla verði við slíkri beiðni er óvenjulegt. Þegar faðir bankar upp á og vill fá barnið afhent vísar móðir í umgengnissamning sem segir að skiptin skuli fara fram „um miðjan dag“ og segir að barnið verði ekki afhent fyrr en kl. 15 eins og um sé samið. Samkvæmt vitnisburði lögreglu verður faðir þá „alveg snar“, lemur kröftuglega á dyrnar og öskrar að lögreglan sé á staðnum. Þegar móðir opnar aftur til að sýna föður/lögreglu umgengnissamninginn ryðst hann inn á heimilið ásamt sambýliskonu sinni, sem er með svarta beltið í karate. Aðilum ber ekki saman um atburðarrás næstu sekúndna en ljóst er að til átaka hefur komið á milli húsráðenda og innrásaraðilana. Eftir stutt átök finnur faðirinn barnið sem hafði falið sig meðan á þessu stóð og fylgst óttaslegið með, dregur það með sér á sokkaleistunum út úr húsinu og að bifreið sinni hraðar en það gat gengið. Á meðan öskrar barnið, „nei, nei, nei“ og hrópar á hjálp (vitnisburður lögreglu og vitnis sem var gestkomandi í næsta húsi). Lögreglumaðurinn telur að um ein mínúta hafi liðið frá því faðirinn braust inn á heimilið og þar til hann kom út með barnið í eftirdragi. Eftir að lögreglumaður kynnir sér úrskurð sýslumanns sem móðirin framvísar fyrirskipar lögreglumaðurinn að barnið skuli fara aftur inn til móðurinnar til þess að hægt sé að róa það og kveðja. Eftir þennan örlagaríka dag hefur móðirin ekki fengið að hitta barnið sitt aftur. Svo fer að hún kærir föðurinn fyrir innrás á heimili sitt og árás á sig og manninn sinn. Kæra móður er felld niður en kæra föður fyrir ofbeldi gegn honum í áflogunum sem sköpuðust þegar hann braust inn á heimilið fær brautargengi. Réttað er í málinu og eiginmaður móðurinnar er sýknaður en móðirin fundin sek um ofbeldi gagnvart barnsföður sínum og brot gagnvart barni þeirra sem varð vitni að ofbeldi hennar gegn föður barnsins. Ólíkt tekið á afbrotum eftir kyni Hefðu kynin verið þau sem að ofan er lýst má telja líklegt að reiði hefði gripið um sig í samfélaginu. Jafnvel ásakanir um feðraveldi sem stingi ofbeldi gegn konum undir stól en veiti brautargengi ákærumálum gegn konum. En af hverju var fallið frá ákæru á hendur þeim sem brýtur sér með ofbeldi leið inn á heimili þar sem barn var í umgengni og rífur það út á sokkaleistunum hrópandi „nei, nei, nei“? Oft eru kærur látnar falla niður sem þykja ólíklegar til sakfellingar. Það á ekki við í þessu tilfelli. Fjöldi dóma hefur fallið yfir mönnum sem ryðjast með valdi inn á heimili barnsmæðra sinna. Því mátti ljóst vera að konan og sambýlismaður hennar yrðu dæmd sek um húsbrot og fyrir að efna til alvarlegra átaka að barni viðstöddu. Það að kæran var látin niður falla hindraði framgang þessa hluta málsins í réttarkerfinu. Þarna tók lögreglan sér það vald að stöðva framgang réttvísinnar. Af hverju? Af því gerandinn var kona? Eða hafði lögreglan aðrar ástæður? Athyglisverð eru þessi orð í dómi Héraðsdóms: "Hins vegar verður að hafa í huga að brotaþoli réðst inn á heimili hans og gerðist þannig sek um refsivert brot gegn ákærða, sbr. 231. gr. almennra hegningarlaga [þ.e. húsbrot]." Engu að síður var konan ekki ákærð. Þetta eru mjög óvenjuleg ummæli í því ljósi og má túlka sem skilaboð dómsvaldsins til ákæruvaldsins. Landsréttur Þetta tiltekna mál bíður nú meðferðar í Landsrétti. Hvort Landsréttur mun snúa dómi Hérðasdóms við eða staðfesta hann kemur brátt í ljós. Landsréttur mun hins vegar ekki taka til meðferðar þá mismunun ákæruvaldsins að fella niður ákæru um húsbrot og árás á húsráðendur en halda kæru innbrotsaðilans til streitu. Landsréttur mun ekki heldur taka afstöðu til þess ofbeldis sem barnið hefur orðið fyrir með tálmun sem nú hefur staðið í tæp 4 ár. Það væri óskandi að Landsréttur þyrfti að taka allt málið til heildarendurskoðunar, því sama hver niðurstaðan úr áfrýjun á dómi Héraðsdósm verður, þá hefur barn orðið fyrir skaða sem allt kapp þarf að leggja á að bæta. Þetta barn á rétt á því að eiga gott samband við báða foreldra sína. Sá réttur barnsins er áréttaður í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hvern dag, sem ekki er verið að vinna að því, er verið að brjóta á þessu barni. Ákall til dómstóla Til eru viðurkennd og gagnreynd greiningarpróf sem greina á milli þess hvort barn er beitt foreldraútilokun eða öðru alvarlegu ofbeldi sem þá getur hugsanlega réttlætt tálmun á umgengni. Það er gríðarlega brýnt að barnaverndarkerfið og dómstólar sæki sér þekkingu á þessu sviði og noti hana til þess að greina hvað raunverulega er á seyði þegar umgengni er tálmuð og ásakanir ganga á víxl. Við myndum aldrei sætta okkur við að heilbrigðiskerfið nennti ekki að verða sér út um þekkingu til að greina sjúkdóma barna rétt. Af hverju sættum við okkur við að barnaverndarkerfið og dómstólar afli sér ekki þekkingar til að greina á milli foreldraútilokunar og annars alvarlegs ofbeldis? Mannréttindadómstóll Evrópu hefur á undanförnum árum dæmt ríki skaðabótaskyld fyrir að vernda ekki samband barns og foreldris í málum sem þessum. Ljóst er af þeim dómum að íslensk yfirvöld eru margsek um vanræsklu gagnvart rétti barna til að njóta beggja foreldra sinna. Það er þörf á vakningu. Á meðan ákæruvaldið og dómstólar útdeila réttlæti eftir kyni og skirrast við að afla sér þekkingar á alvarlegu ofbeldi gagnvart börnum verður dómstóll götunnar hinn raunverulegi Hæstiréttur. Það mun ekki færa okkur líf án ofbeldis. 1.Dofri Hermannsson 2.Sigríður Guðlaugsdóttir 3.Brjánn Jónsson 4.Ingveldur Stefánsdóttir 5.Heimir Hilmarsson 6.Ester Magnúsdóttir 7.Hilmar Þorsteins Garðarsson 8.Unnur Þorsteinsdóttir 9.Rúnar Gregori Muccio 10.Júlíana Kjartansdóttir 11.Jón Andri Finnsson 12.Hildur Eiríksdóttir 13.Rósa Emilsdóttir 14.Ragnhildur Sigurðardóttir 15.Hildur Emlba Ragnheiðardóttir 16.Kristín Björg Knútsdóttir 17.Katrín Magnúsdóttir 18.Ágústa Eiríksdóttir 19.Steinn Jónsson 20.Bjarni Halldór Kristjánsson 21.Aldís Eiríksdóttir 22.Kristinn Magnússon 23.Pálína Rosinkranz Theodórsdóttir 24.Guðmundur St. Ragnarsson 25.Guðmundur F Jónsson 26.Hanna Björg Guðjónsdóttir 27.Drífa Magnúsdóttir 28.Sólmundur Friðriksson 29.Salómon Örn Guðjónsson 30.Anna Lísa Baldursdóttir 31.Guðlaug Freyja 32.Eiríkur Ingi Jóhannsson 33.Inga G Halldórsdóttir 34.Helga Sigurðardóttir 35.Þórður Friðbjarnarson 36.Teitur Atlason 37.Katrín Júlía Júlíusdóttir 38.Jón Egill Bragason 39.Ellert J Hreinsson 40.Tinna Gunnlaugsdóttir 41.Harpa Rútsdóttir 42.Ragnar Friðrik Franklínsson 43.Kristinn Sigurjónsson 44.Ívar Örn Hauksson 45.Dagný Hermannsdóttir 46.Sveinn Reynisson 47.Hermann Þór Sæbjörnsson 48.Ingunn Snædal 49.Örn Ólafsson 50.Eydís Hörn Hermannsdóttir 51.Örn Amin 52.Guðlaugur M Magnússon 53.Særún Gréta 54.Magnús Ómarsson 55.Ragnar Vilhelmsen Hafsteinsson 56.Hilmar Trausti Harðarson 57.Friðrik Ottó Friðriksson 58.Björn Leifsson 59.Kristinn Sæmundsson 60.Helga Dögg Sverrisdóttir 61.Friðgeir Örn 62.Eyrún Halla Kristjánsdóttir 63.Karl Heiðar 64.Stefán Páll Páluson 65.Elma Ósk Óskarsdóttir 66.Ingimundur Stefánsson 67.Jón Eiríksson 68.Sjöfn Kristjánsdóttir 69.Árný Heiða Helgadóttir 70.Nataliia Dubrovka Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 19.10.24 Halldór Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við Ágústa Árnadóttir Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir Skoðun Sögur ísraelska hermannsins Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir Skoðun Opið bréf til ríkissaksóknara og forseta Hæstaréttar Guðbjörn Jónsson Skoðun Það er komið nóg Bozena Raczkowska Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til ríkissaksóknara og forseta Hæstaréttar Guðbjörn Jónsson skrifar Skoðun Það er komið nóg Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Sögur ísraelska hermannsins Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fullveldi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun „Hver sagði þér að heimurinn væri réttlátur?“ Davíð Bergmann skrifar Skoðun Í upphafi kosningabaráttu Heimir Pálsson skrifar Skoðun Ert þú ég eða verð ég þú Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Ákall um annars konar hagkerfi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Lögbrot íslenskrar stjórnsýslu og dómstóla Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Háskóli Íslands styður þjóðarmorð Elí Hörpu og Önundarbur skrifar Skoðun Stjórnvöld bregðist við eggjaskorti með afnámi tolla Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Í hvernig samfélagi viljum við búa í? Ólafur H. Ólafsson skrifar Skoðun Endurhugsum íslenskt skólakerfi: Ný sýn á nám og kennslu Inga Sigrún Atladóttir skrifar Skoðun Þankar um framtíð landsins okkar Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Er Landsvirkjun til sölu? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar pólitík hindrar framför Hjörtur Sveinsson skrifar Skoðun Nú á lýðræðið næsta leik Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Fær þitt barn kennslu í fjármálalæsi? Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Dagur í grunnskóla Hulda María Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar
Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun