Erlent

Gert að draga úr út­blæstri um 50 prósent í skiptum fyrir ríkis­að­stoð

Atli Ísleifsson skrifar
Vélar Air France á Orly-flugvelli í París.
Vélar Air France á Orly-flugvelli í París. Getty

Stjórnvöld í Frakklandi hafa sett ströng skilyrði um að flugfélagið Air France dragi hressilega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, ætli það sér að fá ríkisaðstoð til að bjarga sér úr ástandinu vegna heimsfaraldursins.

Líkt og með önnur flugfélög hefur faraldur kórónuveirunnar leikið félagið grátt og hefur farþegum fækkað um rúmlega 80 prósent frá því fyrir faraldur.

Fréttaskýrendur segja að skilyrði Frakklandsstjórnar þýði að félagið verði að svo gott sem hætta öllu innanlandsflugi á leiðum þar sem lestarferðir eru raunhæfur og hraður valkostur.

Um 50 prósent fyrir árið 2024

Forsvarsmenn Air France segja að nokkur ár komi til með að líða þar til að flugbransinn nái fyrra umfangi. Flugfélagið og frönsk stjórnvöld eiga nú í viðræðum um ríkisaðstoð sem fæli í sér að félagið fengi sjö milljarða evra, um 1.083 milljarða íslenskra króna, í lán og lán í ríkisábyrgð.

Í skiptum fyrir aðstoðina krefst franska ríkið að Air France dragi úr útblæstri um 50 prósent fyrir árið 2024, að því er segir í frétt Le Figaro. Er haft eftir umhverfisráðherranum Elisabeth Borne að forsvarsmenn Air France hafi samþykkt skilmála um 50 prósent samdrátt í útblæstri.

Ekki liggur þó fyrir að svo stöddu hvernig flugfélagið ætli sér að standa við loforðin um minni útblástur.

Franski fjármálaráðherrann Bruno Le Maire.Getty

Allir í lestirnar

„Það er engin ástæða til að fljúga þegar hægt er að ferðast með lest á skemmri tíma en tveimur og hálfum tíma,“ segir fjármálaráðherrann Bruno Le Maire, en í Frakklandi er að finna elsta og næststærsta háhraðalestakerfi álfunnar. Ferðast TGV-lestirnar að jafnaði um á 320 kílómetra hraða.

Air France flýgur nú til sextán borga víðs vegar um Frakkland og er fjarlægðin milli margra þeirra vel innan þeirra marka sem fjármálaráðherrann Le Maire talar um.

Air France hefur einnig gripið til fleiri aðgerða til að bregðast við faraldrinum. Þannig var greint frá því í síðustu viku að níu A380 risaþotur flugfélagsins hafi verið teknar úr umferð, en áður hafði verið miðað við að það myndi gerast árið 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×