Hildur María Jósteinsdóttir hefur tekið við störfum sem útibússtjóri í útibúi Landsbankans í Mjódd í Breiðholti.
Í tilkynningu frá bankanum segir að Hildur María hafi hafið störf hjá Landsbankanum árið 2006, fyrst sem gjaldkeri og síðar þjónustufulltrúi og sérfræðingur í einstaklingsviðskiptum.
„Hún hefur verið staðgengill útibússtjóra Landsbankans í Borgartúni frá 2014.
Hildur María hefur hlotið vottun sem fjármálaráðgjafi,“ segir í tilkynningunni.