Magnús Stefánsson frá Fagraskógi leggur handboltaskóna á hilluna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2020 15:30 Magnús Stefánsson hefur skilað frábæru starfi í ÍBV búninginum og þá sérstaklega í varnarleiknum. Vísir/Bára
Magnús Stefánsson hefur spilað sinn síðasta handboltaleik á ferlinum en ÍBV segir frá því á fésbókarsíðu sinni í dag að hann hafi tekið þá ákvörðun að leggja skóna á hilluna. Magnús er fæddur árið 1984 og hélt upp á 36 ára afmælið sitt í apríl. Magnús byrjaði feril sinn fyrir norðan með KA en lék síðar með Fram. Hann kom síðan til Vestmannaeyja árið 2011. „Árið 2011 fluttum þau hjúin, Magnús og Ester okkar Óskarsdóttir svo til Eyja og skrifaði Magnús undir samning hjá Bandalaginu. Magnús er hvers manns hugljúfi og náði mjög fljótt að stimpla sig vel inn í Eyjasamfélagið og ÍBV-fjölskylduna,“ segir í fréttinni um Magnús á fésbókarsíðu ÍBV. Magnús Stefánsson varð tvisvar Íslandsmeistari með ÍBV og þrisvar bikarmeistari þar af nú síðasta á nýloknu tímabili. Ásamt því að leika handknattleik hefur Magnús verið mjög virkur í félagsstarfi ÍBV og verið þjálfari hjá yngri flokkum. Magnús lék 203 deildarleiki fyrir ÍBV og skoraði í þeim 318 mörk en svo lék hann einnig 12 leiki í Evrópukeppni og skoraði í þeim 13 mörk. „Við erum þakklát fyrir að hafa fengið Magga á sínum til Eyja og allt það sem hann hefur fært klúbbnum á þessum árum. Við þökkum Magnúsi kærlega fyrir tímann á parketinu, munum sakna þess að sjá hann ekki þar en hann verður alltaf partur af klúbbnum og mun starfa áfram með okkur!,“ segir í fréttinni um Magnús á fésbókarsíðu ÍBV.
Olís-deild karla ÍBV Mest lesið Lét dóttur sína hlaupa þrátt fyrir að hún ætti erfitt með að anda Sport Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Formúla 1 „Verður gott að fá meiri frítíma en mun sakna strákanna“ Körfubolti Þóra og Ægir best en engin verðlaun í Skagafjörð Körfubolti Tók tapsáran Willum töluverðan tíma að jafna sig Sport Þau bestu verðlaunuð á lokahófi KKÍ Körfubolti Frumraun Gylfa í beinni í kvöld Íslenski boltinn Var ósátt en er nú mætt aftur í landsliðið Handbolti Ólympíufari lést í eldsvoða Sport Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Íslenski boltinn Fleiri fréttir Andri Már markahæstur en Ýmir hafði betur í Íslendingaslagnum Aldís Ásta og félagar í lykilstöðu eftir stórsigur Sveinbjörn bikarmeistari í Ísrael „Væri helvíti gaman að enda ferilinn svona“ Sorrí Valdi og allir hinir Var ósátt en er nú mætt aftur í landsliðið „Trúi ekki öðru en að við fáum fullt hús af áhorfendum“ Varði fimm skot gegn gömlu félögunum Uppgjörið: Grótta - Valur 19-30 | Meistararnir eru deildarmeistarar Oddaleikur framundan milli Íslendingaliðanna Minnkuðu muninn í eitt mark úr lokaskotinu Sló (líklega) metið yfir flest mörk að meðaltali í leik „Mér þykir virkilega vænt um þennan titil“ Grótta í umspil eftir tap gegn Aftureldingu Ómar Ingi og Gísli Þorgeir fóru mikinn í Búkarest Uppgjörið: FH - ÍR 33-29 | FH-ingar deildarmeistarar annað árið í röð „Bestu liðin hafa ekkert að fela og deila upplýsingum“ Portúgölsku Íslendingaliðin með mikilvæga sigra Bjarki Már öflugur Elliði Snær átti sinn þátt í óvæntum sigri Alfreð Gísla: „Skemmdarverk á handboltanum“ Aldís með níu mörk í naumum sigri Andrea og stöllur í góðri stöðu eftir fyrri leikinn Valskonur taka tveggja marka tap með sér heim á Hlíðarenda Uppgjör og viðtal: Haukar - Izvidac 30-27 | Haukar fara með naumt forskot til Bosníu Marta hetja Eyjakvenna Grótta vann gríðarmikilvægan sigur gegn Stjörnunni Gísli fór mikinn í fyrsta leiknum eftir meiðsli Fram tryggði annað sætið með sigri gegn ÍR Íslendingalið mætast í úrslitakeppninni Sjá meira