Börsungar með stórsigur í fyrsta leik eftir hlé | Messi og Braithwaite á skotskónum

Messi fagnar markinu í kvöld.
Messi fagnar markinu í kvöld. getty/ David Ramos

Barcelona heimsótti Mallorca í fyrsta leik liðanna eftir Covid-hlé. Börsungur unnu sannfærandi sigur, 4-0, en Martin Braithwaite skoraði sitt fyrsta mark fyrir Barca í leiknum.

Arturo Vidal skoraði fyrsta mark leiksins strax á 2. mínútu. Það var síðan Daninn Martin Braithwaite sem bætti við öðru marki Börsunga á 37. mínútu og skoraði þar með sitt fyrsta mark fyrir félagið. Staðan í hálfleik 2-0 fyrir Katalóníumönnum.

Börsungar voru mun meira með boltann í leiknum og Jordi Alba náði að koma boltanum í netið á 79. mínútu, 3-0. Að sjálfsögðu var það enginn annar en Lionel Messi sem innsiglaði sigurinn, hann skoraði fjórða mark leiksins á 90. mínútu.

Eftir leikinn eru Barcelona með fimm stiga forskot á toppnum en erkifjendurnir í Real Madrid eiga leik inni á morgun.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira