Samgönguráðherra vonast til að hægt verði að bjóða út smíði nýrrar flugstöðvar á Reykjavíkurflugvelli fyrir áramót. Tillaga um að Isavia semji við Air Iceland Connect um að taka yfir verkefnið var kynnt í ríkisstjórn í morgun. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2.
Það hafa einkum þrjár staðsetningar verið ræddar fyrir nýja flugstöð; austan við afgreiðslu Flugfélagsins, við Loftleiðahótelið og við Umferðamiðstöðina. Núna stefnir í þá niðurstöðu hún verði reist á sama stað og gamla Flugfélagsbyggingin, sem verði rifin.

„Þessi kostur, að endurbyggja á sama stað, er að okkar mati bestur og áhugavert tækifæri til að koma framkvæmdinni bara strax af stað og að ganga um leið frá öllu umhverfinu, bílastæðum og slíku í leiðinni,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra.
Air Iceland Connect hafði látið teikna flugstöð en samgönguráðherra og fjármálaráðherra kynntu ríkisstjórn þá hugmynd að Isavia tæki yfir verkefnið.

„Flugfélagið var komið með framkvæmdaleyfi í raun frá Reykjavíkurborg og við vonumst til að geta yfirtekið það framkvæmdaleyfi. Þá gæti, þegar samningar liggja fyrir - væri hægt að bjóða þetta út - og vonandi bara helst á þessu ári - og spíta þannig inn í meiri atvinnusköpun og meiri tækifæri. Og auðvitað þessa nauðsynlegu uppbyggingu þarna á staðnum,“ segir ráðherrann.

Flugstöðin yrði byggð í áföngum, og flugafgreiðslu haldið gangandi á meðan. Gert er ráð fyrir að allt innanlandsflug verði í húsinu sem og takmarkað millilandaflug og að leigutekjur og bílastæðagjöld standi undir kostnaði.
„Og verði svona sjálfbær fjárfesting. Og með því að taka bílastæðin með og undir þá sjáum við fyrir okkur að það gæti vel orðið þannig. Heildarkostnaður er kannski ekki nákvæmur en ég myndi trúa að þetta yrði í kringum milljarður,“ segir Sigurður Ingi.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: