Innlent

Eldur kom upp í flutninga­bíl hjá Mjólkur­sam­sölunni

Atli Ísleifsson skrifar
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði kom útkallið klukkan 14:06.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði kom útkallið klukkan 14:06. Jóhannes Óskarsson

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að húsakynnum Mjólkursamsölunnar í Hálsahverfi í Reykjavík um klukkan 14 eftir að tilkynnt var um eld í flutningabíl.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði kom útkallið klukkan 14:06.

Tveir slökkviliðsbílar hafi verið sendir á vettvang og greiðlega hafi tekist að slökkva eldinn.

Visir/Jóhann



Fleiri fréttir

Sjá meira


×