Innlent

Tveir greindust í veiru­skimun á Kefla­víkur­flug­velli

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá Keflavíkurflugvelli í gær. Um 900 manns voru skimaðir fyrir veirunni á flugvellinum síðasta sólarhringinn.
Frá Keflavíkurflugvelli í gær. Um 900 manns voru skimaðir fyrir veirunni á flugvellinum síðasta sólarhringinn. Vísir/Einar

Tveir greindust með kórónuveiruna í landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli í gær og eru virk smit á landinu því nú sex talsins, samkvæmt tölum á Covid.is. Síðasta sólarhringinn voru alls tekin sýni úr um 900 manns sem fóru í gegnum flugvöllinn eftir að landamærin voru formlega opnuð. Þeir sem greindust með veiruna í landamæraskimuninni eru nú í einangrun en dvelja þó ekki í sóttvarnahúsinu á Rauðarárstíg, samkvæmt upplýsingum fréttastofa.

603 eru nú í sóttkví og þeim fjölgaði því um 53 milli daga. Alls hafa nú 1812 smitast af veirunni á Íslandi frá upphafi faraldursins og 1796 náð bata. 64.152 sýni hafa verið tekin og 21.895 manns lokið sóttkví. Enginn liggur inni á sjúkrahúsi með veiruna.

Í dag er búist við ellefu hundruð manns til landsins í sjö flugvélum. Gera má ráð fyrir að flestir þeirra velji að láta skima sig fyrir veirunni á Keflavíkurflugvelli.

Tveir þeirra sex sem nú eru í einangrun með veiruna hér á landi eru rúmenskir menn sem komu hingað til lands í byrjun júní. Þeir greindust með veiruna um helgina eftir að hafa verið handteknir í tengslum við þjófnað á Suðurlandi.

Boðað hefur verið til upplýsingafundar fyrir blaðamenn um stöðu mála varðandi opnun landamæra klukkan tvö í dag. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi. Þá verður einnig fylgst með framvindu fundarins í beinni textalýsingu á Vísi.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×