HönnunarMars kynnir nýjung á hátíðinni í ár sem kallast Studio 2020. Stjórnendur og skaparar eru Hlín Helga Guðlaugsdóttir, stjórnandi DesignTalks, Garðar Eyjólfsson, fagstjóri meistaranáms í hönnun við Listaháskóla Íslands, María Kristín Jónsdóttir, ritstjóri HA, Steinn Einar Jónsson, upplifunarhönnuður og Einar Egils, kvikmyndagerðarmaður með stuðningi Íslandsstofu.
Studio 2020 er tilraunavettvangur á HönnunarMars 2020, sem ætlað er að miðla efni hátíðarinnar á ýmsu formi á meðan á henni stendur og í kjölfarið. Markmiðið er að veita innsýn í hugskot hönnuða, viðfangsefni og hugmyndir um framtíðina. Auk þess að hvetja til breiðs samtals um hönnun og arkitektúr. Efninu verður miðlað til ólíkra hópa, almennings sem og fagfólks, innanlands og erlendis.
Nú er rétti tíminn til þess að gera tilraunir með nýjar leiðir í miðlun hönnunar, umfram hinar hefðbundnu áherslur.

Dagskrá Studio 2020 samanstendur af fjölbreyttum viðtölum, beinum útsendingum og streymi, gjörningum og hlaðvarpi. Einn dagskrárliður Studio 2020 yfir hátíðina er spjallþáttur þar sem farið verður yfir sýningar og viðburði hátíðarinnar með vel völdum einstaklingum á meðan hátíðin stendur yfir. Því efni verður miðlað í samstarfi við Vísi og síðar aðgengilegt á heimasíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Allt efni tengt HönnunarMars sem birtist á Vísi má finna HÉR. Áhugasömum er bent á að fylgja HönnunarMars á samfélagsmiðlum til þess að fá hönnun beint í æð! @designmarch
HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.
HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars.