Barcelona þarf að sætta sig við silfrið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi skoraði fyrir Barcelona í kvöld en það dugði skammt.
Lionel Messi skoraði fyrir Barcelona í kvöld en það dugði skammt. VÍSIR/GETTY

Eftir að hafa unnið spænska meistaratitilinn tvö síðustu ár verður Barcelona að sætta sig við silfur í ár en liðið tapaði í kvöld gegn Osasuna í næstsíðustu umferð, 2-1.

Barcelona þurfti að vinna Osasuna og treysta á að Real Madrid tapaði gegn Villarreal, til að eiga möguleika á að vinna titilinn. Hvorugt gekk eftir. Barcelona er því sjö stigum á eftir Real fyrir lokaumferðina, en átta stigum á undan næsta liði, Atlético Madrid. 

Osasuna komst yfir á 15. mínútu í kvöld með marki Jose Arnaiz en Lionel Messi jafnaði metin úr aukaspyrnu um miðjan seinni hálfleik. Osasuna var manni færra síðasta korterið í leiknum en tókst samt að skora sigurmark á síðustu stundu, sem Roberto Torres skoraði.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira