Inter í næstefsta sæti eftir stórsigur

Alexis Sánchez skoraði og lagði upp fyrir Inter í kvöld.
Alexis Sánchez skoraði og lagði upp fyrir Inter í kvöld. VÍSIR/GETTY

Inter vann í kvöld stórsigur á SPAL á útivelli, 4-0, og kom sér upp í 2. sæti ítölsku A-deildarinnar í fótbolta.

Antonio Candreva kom Inter yfir seint í fyrri hálfleik eftir sendingu Alexis Sánchez. Cristiano Biraghi, Sánchez og Roberto Gagliardini skoruðu svo í seinni hálfleiknum. Inter er með 71 stig, sex stigum á eftir toppliði Juventus þegar fimm umferðir eru eftir, og stigi á undan Atalanta. SPAL er á botninum með aðeins 19 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira